Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Qupperneq 43
sumartegundirnar og að síðustu þær sem stóðu grænar fram
eftir hausti.
Venjan var að hafa bæði búfé og jarðrækt á sama búi, í því
felst viðurkenning á mikilvægi hinna lífrænu efna fyrir
hringrásina. Sé hringrásin rofin, með að rækta á einum stað
og fóðra gripina á öðrum, koma úrgangsefnin frá dýrunum
ekki lengur til jarðarinnar, en safnast þess í stað upp þar sem
gripirnir eru. Þetta gerir að búfjáráburðurinn breytist úr því
að vera bæði lífrænn orkugjafi og áburður í mengunarvald.
Til að halda hringrásinni gangandi verður áburðurinn að
komast aftur í jörðina þar sem lífrænu efnin gefa orku, sem
heldur hringrásinni gangandi.
Sáðskipti og nýting á belgjurtum í ræktuninni er annað
húsráð til að virkja sólarorkuna. Belgjurtirnar binda orku,
sem þarf til að binda köfnunarefni (með hjálp lífrænna efna
frá tillífuninni), og auka þannig frjósemi jarðvegsins. Fjöl-
breyttur gróður virðist örfa starf baktería, sem binda köfn-
unarefni, ef tii vill vegna efna, sem koma frá rótum þeirra.
Þegar við göngum út frá því, sem við nú vitum um hringrás
náttúrunnar, sem viðheldur frjósemi jarðvegsins og er orku-
gefandi, getum við ályktað: Nýti landbúnaður sólarorku vel
verður hann að byggja á gróðri, sem er grænn sem stærstan
hluta ársins, þar sem belgjurtir eiga sína hlutdeild og búféð er
til staðar. Og þannig var hefðbundinn landbúnaður. En þetta
hefur verið eyðilagt af breytingum síðustu ára í landbúnaði.
Þegar við hugum nánar að áhrifum þess á orkubúskap búsins
og rekstraráhrif þess rennur upp fyrir okkur hvað orðið hefur
um þau verðmæti, sem hinn nýtísku landbúnaður hefur
skapað.
I maísræktun í Bandaríkjunum eru sáðskiptin í dag, maís á
móti maís eða maís og sojabaunir. Þetta þýðir að það er aðeins
skamman tíma á ári, sem þar er gróður, sem getur bundið
sólarorku. Maís þroskast á um 90 dögum og blöðin eru í fullri
stærð og fær um að binda sólarorku að fullu um helming þessa
tíma. Ef aðeins er ræktaður maís, er sólarorkan því nýtt innan
við þrjá mánuði á ári. Hinn hluta ársins bætir sú sól, sem berst
til jarðar, hvorki hag bús né þjóðar. Sáðskipti með belgjurtum
45