Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Side 48

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Side 48
að sem heild. Þegar skordýrin eru orðin ónæm fyrir eyðing- arlyfjum hefur notkun þeirra aukist mun hraðar en land- búnaðarframleiðslan. Þetta þýðir að bændurnir fá sífellt minni tekjur þrátt fyrir vaxandi útgjöld. Þegar við skoðum hlutina þannig af sjónarhóli hagfræð- innar hefur landbúnaðartæknin þýtt annað og meira en aukin framleiðsla. Vinnuafli hefur verið skipt út fyrir orku- krefjandi vörur: vélar, orku og efnaframleiðslu. Líkamlega vinnan í landbúnaði hefur fallið á sama hátt og fjármagnið hefur aukist. Fjárfestingar stigu út 9400 dollurum á mann 1950 í 53.500 dollara 1970. Þessar tölur sýna fjármagnseftir- spurn landbúnaðarins í hlutfalli við vinnuaflseftirspurn. Þetta hlutfall milli fjármagns og vinnuafls ræður miklu um tvö önnur þjóðarvandamál — fjármagnsskort og atvinnuleysi (skort á vinnu). Framleiðsla þar sem fjármagnskostnaður er hár í hlutfalli við vinnumagn hefur tilhneygingu til að auka enn á þessi vandamál bæði. Eftir 1950 hefur landbúnaður orðið einn af þeim atvinnu- greinum þar sem fjármagn á hvern vinnandi mann er hvað mest. Árið 1970 var það aðeins í olíuiðnaði sem þetta var hærra (1971 var það þar 117.865 dollarar á hvern vinnandi mann). Og með því að landbúnaðurinn verður sífellt háðari iðnaðarframleiðslu hefur hann aukið enn á mikilvægi þess iðnaðar þar sem þetta hlutfall er hæst fyrir — olíuiðnaður og efnaiðnaður. Ameríska orðið fyrir þennan nýja landbúnað — agribuisness — hæfir því ákaflega vel. Landbúnaðurinn virðist styðja iðnaðinn í að skapa þau vandamál, sem verst herja á efnahagslífið í dag. Við höfum nú fengið smá skýringu á spurningunni, sem við settum fram, um það hvert hin auknu framleiðsluverðmæti landbúnaðarins hefðu farið. Mest af framleiðsluaukningunni hefur gengið beint til iðnaðar, t.d. olíuiðnaðarins, sem sér landbúnaði fyrir hinum nýju rekstrarvörum, sem hafa leitt til að nýting sólarorku hefur minnkað en landbúnaðurinn í staðinn orðið háðari geymsluorku. Þegar viðskipti voru tekin upp við olíufélögin í stað sólar- innar, tengdust bandarísk bændabýli iðnaði með veltu upp á 50
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.