Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Blaðsíða 49
miljarði dollara. Þessi iðnaður selur ekki aðeins orku til land-
búnaðar heldur keppir einnig við hann, þegar skortur er.
Própangas er ágætt dæmi. Própangas er fyrst og fremst notað
í landbúnaði og í plastiðnaði. í orkukreppunni 1973 hækkaði
olíuiðnaður óhikað verð á própangasi, þannig að bændur
lentu í vandræðum með kaup á því própangasi, sem þeir
þurftu til kornþurrkunar, á einstöku stöðum var um þreföld-
un á verði að ræða. Aftur á móti var þessi hækkun lítið
vandamál fyrir olíufélögin, sem sjálf ráku plastframleiðslu.
Þar er um að ræða hringa, sem ráða öllum liðum frá hráolíu
til plastvörunnar. Fyrir slík fyrirtæki kemur slík hækkun að-
eins, sem hækkun á einum lið af mörgum í bókhaldi.
Própangas, ammoníak og önnur efnasambönd, sem nýtt
eru í landbúnaði mynda nokkurskonar vogarstöng, sem
bindur landbúnaðinn olíuiðnaði. En það er ekki sami hag-
þungi, sem hvílir á báðum örmum stangarinnar. Fjármagn í
venjulegu bandarísku býli var 148.600 dollarar 1974, meðan
olíufélagið hafði veltu upp á marga miljarða. Þunginn er því
hjá olíuiðnaðinum og hjá því verður varla komist að það
gangi útyfir bóndann.
Þar til olíukreppan kom var þessi veruleiki dulinn. Á
fimmta og sjötta áratugnum urðu bændur stöðugt háðari
eldsneyti og orkufrekum efnasamböndum. Verð á þessum
vörum var þá fremur lágt, sem markaðist af því að verð á olíu
var stöðugt og meira að segja, þegar tillit er tekið til verð-
bólgu, féll á árabilinu 1950-1973. Meðan verð á tilbúnum
áburði var lágt skipti það ekki öllu þó að eftirtekjan færi
heldur minnkandi þar sem notkun hans borgaði sig samt vel.
Árið 1973 kom síðan olíukreppan og þá fengum við byrjun
á áframhaldandi og örri hækkun á eldsneytisverði. Jafnhliða
gerist það, að verð á orkufrekum vörum eins og tilbúnum
áburði og öðrum landbúnaðarefnavörum hækkaði gífurlega.
Frá 1970 til 1975 hækkaði verð á própangasi um 101%, köfn-
unarefnisáburði um 253% og eyðingarlyfja um 67%. Árið
1973 hækkaði verð á landbúnaðarvörum svo mikið að nægði
meira en til að mæta verðhækkunum, en 1975 var sá hagn-
aður horfinn. Þessi þróun hefur veikt bandarískan landbún-
51