Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 52
og samvinnu meðal kvenna og styðja hverskonar menningar-
og mannúðarstarfsemi á félagssvæðinu og vera tengiliður
kvenfélagasambanda í Norðlendingafjórðungi.“
Síðan þetta gerðist hafa lögin verið endurskoðuð nokkrum
sinnum og þeim breytt lítillega, en þessi grein hefur haldist
óbreytt og sambandið reyndar alltaf starfað í anda hennar.
Smám saman fjölgaði sýslusamböndunum innan Sam-
bands norðlenskra kvenna, og nú síðustu árin hafa þau verið
sjö. Þau ná frá Norður-Þingeyjarsýslu til Austur-Húnavatns-
sýslu, að báðum meðtöldum.
Á stofnárinu 1914 voru þegar starfandi nokkur kvenfélög á
Norðurlandi, og þeim fór fjölgandi. Þá voru að byrja að
flytjast til landsins prjónavélar, saumavélar, spunavélar, nýir
vefstólar og mörg fleiri tæki, sem léttu vinnuna á heimilun-
um. Kvenfélögin beittu sér fyrir kaupum og kynningu á
þessum tækjum. Menntun kvenna og uppeldismál voru
einnig mjög á dagskrá í félögunum. Þá var húsmæðrafræðsla
svo til engin á landinu, og margar konur höfðu brennandi
áhuga á úrbótum á því sviði. Þannig var um næg verkefni að
ræða.
A stofnfundinum á Akureyri var líka rætt um útgáfu á
málgagni fyrir konur, og varð það til þess að Hlín, ársrit
Sambands norðlenskra kvenna, byrjaði að koma út 1917.
Þetta rit kom út i 43 ár og var mikill aufúsugestur á norð-
lenskum heimilum. Halldóra Bjarnadóttir var ritstjóri öll árin
og annaðist bæði útgáfuna og dreifinguna.
Mikill fjöldi námskeiða hefur verið haldinn á vegum
S.N.K. Á fyrstu árunum voru ráðnir kennarar til að ferðast
um sambandssvæðið og halda námskeið í garðyrkju. Enn má
sjá merki þessa þegar ferðast er um Norðurland, því að þar eru
víða gamlir trjágarðar með stórvöxnum trjám, sem setja hlý-
legan svip á umhverfið og prýða byggðina. Margir þessara
garða eru að meira eða minna leyti árangur þessara fyrstu
námskeiða. Garðræktin hefur reyndar verið eitt af aðal-
áhugamálum S.N.K. alla starfstíð þess. Nú hin síðustu ár hafa
á vegum sambandsins farið hópar af unglingum og hús-
mæðrum af Norðurlandi á nokkurra daga námskeið í Garð-
54