Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 68
að vísu alveg fráleitt að stefna að því með kynbótum að fá
gripi sem gefa fituminni mjólk en við höfum í dag. Oski menn
eftir slíkri mjólk er það einfaldast framkvæmt við stöðlun á
fitumagni neyslumjólkur. A þann hátt skapast að vísu aukin
smjörframleiðsla úr þeirri fitu sem úr neyslumjólkinni væri
fjarlægð og þrengir það þannig mjólkurmarkaðinn. I þessu
sambandi má benda á að t.d. í Efnahagsbandalagslöndunum
þar sem offramleiðsla ríkir á mjólkurvörum var neysla á
mjólkur fitu 1976 92% af heildarframleiðslunni, en fyrir pró-
tein aðeins 65%, þannig að offramleiðsluvandamálið er ekki
fyrst og fremst offramleiðsla á mjólkurfitu. Það sem að mínu
mati mælir mest gegn því að lækka efnainnihald mjólkur með
ræktunarstarfi er þó: í fyrsta lagi þá hlýtur langtíma markmið
okkar við búfjárframleiðslu að vera að rækta gripi sem nýta
fóður sem best, þ.e. umbreyta fóðri á sem bestan hátt í afurðir.
Þessu náum við að sjálfsögðu aðeins með gripum sem fram-
leiða mikið þurrefni, því að fóðurefnin sem umbreytast í
framleiðslu finnum við í því. I öðru lagi held ég að á þann hátt
getum við ræktað hraustari og endingarbetri gripi en ella.
Þegar við erum að ákveða ræktunarmarkmið í nautgripa-
rækt verðum við einnig um leið að hafa hugfast að það rækt-
unarstarf sem við erum að vinna í dag skilar sér fyrst og fremst
að 10-15 árum liðnum. Við þurfum því við ákvörðun á
markmiði, að reyna að vera á undan tímanum. Aftur á móti
getur það ekki mótast af því hvernig vindur blæs hverju sinni
heldur því sem við getum ætlað að sé þróun til lengri tíma.
Kynbótamöguleikar.
Við getum hugsað okkur í mjólkurframleiðslu marga mögu-
leika til að velja fyrir auknum og betri afurðum. Við getum
valið fyrir, mjólkurmagni, kg 4% mælimjólkur, fitumagni,
próteinmagni, fituprósentu, próteinprósentu, þurrefnis-
magni, þurrefnisprósentu. Við getum valið fyrir einhverju
einum þessara þátta eða fleirum í sameiningu þar sem við
leggjum þá mismikla áherslu á hvern og einn þeirra. Ef við nú
þekkjum arfgengi fyrir þessi einstöku mál og tengsl milli
þeirra, má með útreikningum meta væntanlegan árangur
70