Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Qupperneq 82
Svipað grjót finnst í Leyningsöxl og víðar. Steinrunnir trjá-
bútar finnast á c.a. 2 km löngum kafla frá Stóruskriðugili að
Lambárdragi á Torfufellsdal. Þessir trjábútar finnast helst í
skálum eða slökkum uppi í miðri hlíð og hafa kannske borist
þangað úr hamrabeltum ofar í hliðinni. Fróðlegt væri að vita,
hvort steingerfingarnir á Glerárdal væru frá sama hlýviðris-
skeiði og þessir steingerfingar.
Um miðbik Torfufellsdals er allmikið framhlaup, er nefnist
Lambárhólar. Bakgrunnur þess er mikil skálahvos í fjallið
með háum bergbeltum að baki. Nefnast skálar þessar Vatns-
skálar. Hár urðarhryggur skiptir hvosinni i tvennt. Norðan
Vatnsskála — allt norður að Stóruskál — er hlíðin, ofan frá
klettabeltum í fjallsbrún og niður á flatlendi, nokkuð jafnt
hallandi og misjöfnulítil, en þess sjást merki, að eitthvað hefur
tognað úr hlutunum næst fjallsbrúnarklettum, kannske er
það aðeins herslumunurinn, að þarna verði meira eða minna
framhrun. Norðan þessarar hlíðar og Stóruskálar, er svonefnd
Snjóskál. Ur brúnum hennar hefur aldrei tekið allan snjó svo
menn viti, en litla fönn var þar að sjá haustið 1966. Að baki
Snjóskálar — austan fjallshryggsins — er Ulfárskál með all-
stórri jökulfönn, Ulfárjökli. Hann hljóp fram veturinn 1925
og tók af fjárhús á Ulfá. Um þann atburð eru til skráðar
heimildir. Þá lagðist Ulfá i eyði.
Úlfárskál og Snjóskál eru nyrst í Torfufellinu og milli þeirra
norðantil er nánast aðeins fjallsbrík. Fannir þeirra blasa við af
þjóðveginum hvarvetna í Fram-Eyjafirði og allt norðan úr
Vaðlaheiði og Svalbarðsströnd.
En lítum nú lengra inn i dalinn. Þegar nær dregur fremsta
hluta Torfufellsdals og Galtártunga fer að gæta móbergsein-
kenna s.s. þursabergs. Það sama gildir um framhluta Eyja-
fjarðardals. í Galtárgili, í nokkuð láréttri línu miðhlíðis, er
gulgrátt leirlag (móberg), sem gæti — samkvæmt áliti vissra
manna — verið setlög sömu tegundar og botnlögin í Mývatni.
Þetta er þó með öllu órannsakað.
Nokkru norðan Galtár er Lambá á Leyningsdal (aðgreind
frá Lambá á Torfufellsdal). Hún kemur úr Lambárvatni, sem
er austan Miðáss á Nýjabæjarfjalli. Hún rennur í tveimur
84