Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Side 93
hausti, ef þau eru tekin áður en borið er á. I Eyjafirði eru sýni
einnig tekin kerfisbundið og á s.l. hausti voru þau af Ár-
skógsströnd, Dalvík og Svalbarðsströnd. I S.-Þing. voru sýni
tekin í Bárðardal, en mjög fá hjá hverjum bónda. Fram-
kvæmd þeirrar samþykktar, sem gerð var á aðalfundi Rf. Nl.
fyrir tveim árum, í þá átt að auka jarðvegsefnagreiningar og
taka allt að tvö þúsund sýni á ári hefur ekki tekist. Síðast liðin
tvö ár hafa sýni verið sem næst eitt þúsund hvort árið og fyrst
og fremst frá tveimur búnaðarsamböndum þ.e. Eyfirðingum
og Skagfirðingum. Ekki hefur verið unnt að ráða starfsmann
aukalega eins og upphaflega var fyrirhugað og öll hefur þvi
þessi áætlun brugðist að meira eða minna leyti. Til þessa
liggja ýmsar ástæður, sem ég ætla þó ekki að rekja nánar hér.
Rannsóknir og ritstörf.
Af minni hálfu hefur fátt verið um rannsóknir á liðnu ári og
engin stór í taki. Ásamt Bjarna Guðleifssyni var sett upp
athugun með uppgræðslu sanda í landi Grímsstaða á Fjöllum
stuttu austan og sunnan brúar á Jökulsá. Bændur á Gríms-
stöðum hafa nýbyggt stór fjárhús og vanhagar um tún til
heyskapar. Að mínum dómi er girnilegast að reyna að fá gras
upp úr því óraflæmi af söndum, sem teigja sig langa vegu
nærri hring í kring um bæ þar á Fjöllunum, stuttu austan ár
sunnan vegar frá brúnni. I fyrra var sáð nokkrum grasteg-
undum í reiti og borið mismikið á. Einn reitur var ósáinn. I
sumar var aftur borið á og þá raun er þessi athugun nú búinn
að sýna, að aðeins hefur þarna fengist uppskera af vallarfox-
grasi af þeim grastegundum er til var sáð. Hins vegar eru
blómplöntur ýmsar vígalegar í reitunum og virðast kunna
áburði vel.
I fyrra var hafin athugun á því hvort hægt væri að finna
handhæga aðferð til þess að segja bændum hvenær ætti að
bera á. Ögn hefur þessu verið haldið til streitu, en ekki orðið,
enn sem komið er, árangur sem erfiði. Að mínu viti bera
bændur víða alltof seint á.
Af ritstörfum er að nefna þrjá stutta þætti í Ársritinu 1977
og lokið er grein um grastegundir i túnum hér norðanlands.
95