Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 100
utan þess, að í þriðja lið ályktunar framleiðslunefndar var lagt
til að greiða skuli lægra verð fyrir framleiðslu ríkisbúa. Sem
sagt, ef eitthvað, þá á að gera aðstöðu tilraunabúa úti á
landsbyggðinni, sem sjaldan hefur verið bágbornari, enn erf-
iðari; bændastéttin sjálf ætlar að slá þau af fyrir fullt og allt.
Þótt rannsókna- og leiðbeiningaþjónusta landbúnaðarins
heyri ekki stjórnunarlega undir stéttarsambandið, þá er ekki
þar með sagt að sú starfsemi sé stéttarbaráttu bænda óvið-
komandi, öðru nær. Stéttarforystunni ber skylda til að vega
og meta þá starfsemi hverju sinni, en því er yfirleitt ekki að
heilsa.
Einhverjir munu vafalaust segja að rannsókna- og leið-
beiningakerfið sé sjálfgefið í ályktunum Stéttarsambandsins.
Gott ef satt er. — Að mínu mati hefur rekstur rannsókna- og
leiðbeiningastarfsins, eins og hann er og hefur lengi verið,
brenglað svo dómgreind bænda á gildi slíkrar starfssemi, að
þeir meta hana næsta lítils og telja hana nánast ekki með í
ályktunum um framleiðslumál sín. — Hvað er það þá í rekstri
rannsókna- og leiðbeiningastarfsins, sem brenglar svo dóm-
greind bænda á gildi hennar í sjálfsbjargarviðleitninni. Ég
veit að ég er ekki einn á báti þegar ég nefni skort á tengslum milh
bænda, rannsóknarmanna og leiðbeinenda. Það er einmitt skorturinn á
þessum tengslum, sem hvetur til tortryggni og kemur í veg fyrir streymi
gagnlegra upplýsinga milli þessara aðila, sem eru meira og minna
einangraðir hver í sínum heimi. Allir búa þessir hópar yfir mikilli
þekkingu hver á sínu sviði, sem ekki berst á milli og dómur manna á
ástandi landbúnaðarmála er felldur án hennar. Það er því höfuðnauðsyn
að rannsóknarverkefni se'u þannig úr garði gerð, í upphaflegri áœtlun, að
þau nái til bœnda og falli að vandamálum þeirra í búskapnum.
Af þessum sökum þurfa rannsóknarmenn, ekki siður en
leiðbeinendur að kynnast og þekkja búskap bænda í smáu og
stóru. Það þarf að fœra rannsóknarmennina út á landsbyggðina, út á
tilraunastöðvarnar og út í búnaðarsamböndin og gera
tengslin milli þessara aðila algjör með því að sömu menn
stundi meira og minna rannsóknir og leiðbeiningar út á meðal
bænda. Ef trú bænda á þessari starfsemi hefur ekki nú þegar
hlotið algjört skipbrot, er ekki seinna vænna en þeir hugi að
102