Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Page 78
ÞÓRARINN LÁRUSSON:
TILRAUNASTÖÐIN
Á SKRIÐUKLAUSTRI
INNGANGUR
í kjölfar þess að Gunnar skáld Gunnarsson hætti búskap á
Skriðuklaustri og gaf íslenska ríkinu jörð og byggingar með
bréfi dags. 11. des. 1948 var sett á stofn tilraunastöð í land-
búnaði á Skriðuklaustri eða vorið 1949. Hafði Gunnar byggt
sér hús eitt stórt og sérkennilegt árið 1939, stuttu eftir heim-
komu sina og frækileg bókmenntaafrek á erlendri grund
einkum í Danmörku og Þýskalandi svo sem kunnugt er.
Við tilraunastöðina hafa starfað fjórir tilraunastjórar frá
upphafi, fyrst Jónas Pétursson 1949-1962, þá Matthías Egg-
ertsson til 1971, Þór Þorbergsson til vors 1984 og síðan und-
irritaður.
Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar, bæði á sviði jarðræktar
og sauðfjárræktar í gegnum árin, án þess að þeim verði lýst
hér. Þess í stað verður reynt að gera grein fyrir þeim verkefn-
um sem nú eru í gangi, nýju fyrirkomulagi á rekstri stöðvar-
innar og reynt að skyggnast inn í hugsanlega framtíð staðar-
ins.
Áður en lengra er haldið þykir til hlýða að gefa stutta
lýsingu á jörð og byggingum fyrir þá sem ókunnugastir eru.
Öll landareign Skriðuklausturs nú, heimaland og afrétt,
nær frá Jökulsá í Fljótsdal, þvert yfir Fljótsdalsheiði að
bökkum Jökulsár á Dal (Brú), en mörkin þar munu vera við
Hölknárós að innan, en Eyvindará að utan. Innan girðingar
80