Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1950, Blaðsíða 168
163
RICHARD BECK
frægðar. Samkvæmt beiðni Purdue-háskólans lét hann smíða geysimikinn rafmagns-
straumbreyti („million volt 25 cycle transformer“) til sýningar á Heimssýningunni
í St. Louis 1904, er notaður skyldi síðar við háskólann í tilraunaskyni. Var hér um
nýmæli að ræða, enda vakti vél þessi feikna athygli á sýningunni, og hlaut Hjörtur
heiðurspening úr gulli að verðlaunum. Annan straumbreyti af sömu stærð smíðaði
hann fyrir hina miklu sýningu í San Francisco 1915 (The Panama-Pacific Inter-
national Exposition) og hlaut aftur heiðurspening úr gulli að verðlaunum. Var straum-
breytir þessi aðallega byggður í tilraunaskyni, einkum með það fyrir augum að
komast að raun um, hvort hagkvæmt myndi að senda magnmikla raforku í stórum
stíl langar vegalengdir.
Þetta eru aðeins víðfrægustu dæmin úr fágætum ferli Hjartar, hátindarnir. En til
staðfestingar því, hve víðtækar voru rannsóknir hans á sviði raforku og rafmagns-
tækja, má geta þess, að hann fékk yfir 100 einkaleyfi á uppgötvunum sínum frá
Bandaríkjastjórn og víða um lönd. Var hann og talinn framarlega í hópi sérfræðinga
og hugvitsmanna sinnar tíðar, og gerðist iðjuhöldur mikill á starfsviði sínu. Færði
hann smám saman út kvíarnar, þangað til verksmiðja hans í Chicago (Thordarson
Electric Manufacturing Co.mpany) var orðið stærðar fyrirtæki, þar sem 5—600
nianna unnu að staðaldri, en hann sjálfur hafði yfirumsjónina, jafnframt því sem
hann hélt áfram bókasöfnun sinni og sjálfsmenntun með víðtækum lestri. Á stríðs-
árunum síðari (1943) hlaut verksmiðja hans heiðursviðurkenningu frá hermálastjórn
Bandaríkjanna fyrir framúrskarandi starf í þágu stríðssóknar þjóðarinnar.
Hjörtur Thordarson var höfðingi í lund og stórgjöfull, þegar því var að skipta, og
má í því sambandi sérstaklega minna á hinar miklu fjárgjafir hans til styrktar elli-
heimilinu „Betel“ að Gimli, Manitoba, en dr. B. J. Brandson, hinn víðkunni skurð-
læknir, þáverandi formaður „Betel“-nefndar, hefur lýst þeim á þessa leið:
„Stærstu gjafirnar voru frá hinum heimsfræga snillingi og göfugmenni C. H.
Thordarson í Chicago. Hann hefur gefið „Betel“ $15000, fyrst $5000, öðru sinni
$10000. Hin síðari gjöf hans gjörði það mögulegt að byggja viðauka þann, sem
byggður var 1928 og ber nafn hans (C. H. Thordarson Addition).“ („Betel“, Lög-
berg, 9. marz 1933.)
Og Hjörtur var jafnmikill höfðingi heim að sækja. Um það get ég borið af eigin
reynd, og er mér minnisstæður meiri hluti dags, sem ég átti með honum á hinu
rnikla bókasafni hans, hversu gagnkunnugur hann var safninu og hversu ljúft honum
var að veita öðrum hlutdeild í þeirri andans nautn, sem bækurnar voru honum. Og
rausn hans við gesti sína var með sama höfðingsbrag.
Það fór að vonum, að afreksmanni sem Hirti Thordarson væri margvíslegur sómi
sýndur. í júní 1929 sæmdi Wisconsin-háskólinn hann meistaranafnbót í heiðurs-
skyni, og fórust þáverandi forseta háskólans, dr. Glen Frank, þannig orð við það tæki-
færi:
,,-Sökum þess, að þér hafið borið snilligáfu uppfyndinganna að köllun yðar; sökum
þess, að hjá yður hefur komið í Ijós andagift og gáfnaþróttur, er aldrei hefur látið á