Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 8

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 8
8 LANDSBÓKASAFNIÐ 1953—1954 Gjöf Haralds Sig- urðssonar vélstjóra Verðugt er að minnast sérstaklega á góða bókagjöf frá Haraldi Sigurðssyni vélstjóra, sem lézt í Reykjavík 27. nóvember 1954. Gjöf Ragnars Lundborg Skömmu fyrir andlát sitt tilkynnti hann Landsbókasafninu, að hann ætti nokkrar gamlar bækur, sem sér þætti vænt um, og kysi hann helzt að þær yrðu eign Landsbókasafnsins eftir sinn dag. Afhenti hann þá þegar nokkrar þeirra, en sumar afhenti kona hans, frú Alice Sigurðsson, að manni sínum látnum. Meðal bóka þessara eru gamlar útgáfur af Islendingasögum, Sturlungu, Snorra-Eddu og Heimskringlu, nokkrar útgáfubækur Páls Sveinssonar, orðabók Fritzners og ýmislegt fleira, sem nú gerist torfengið. Sumar bækurnar hafa verið í eigu afa Haralds og langafa, þeirra Jens Sigurðssonar rektors og Björns Gunnlaugssonar yfirkennara, en Haraldur var sonur Sigurðar prófasts Jenssonar í Flatey. Bókagjöf Haralds Sigurðssonar var Landsbókasafninu mjög kærkomin, ekki sízt vegna þess hugarfars, sem slíkar ráðstafanir bókelskra manna eru af sprottnar. I janúar 1954 andaðist í Stokkhólmi dr. Ragnar Lundborg, sem mörgum var kunnur hér á landi, einkum fyrr á árum þegar sjálf- stæðisbarátta íslendinga stóð sem hæst. Ritaði hann þá bækur og fjölda greina um sjálfstæðismál íslands og barðist drengilega fyrir íslenzkum málstað. Hann byrjaði snemma að safna öllu, sem ritað var um íslenzk stjórnmál, bókum, ritling- um og blaðagreinum á ýmsum málum. Hélt hann því áfram eftir föngum til síðustu stundar. í erfðaskrá sinni mælti hann svo fyrir, að Landsbókasafn íslands skyldi eignast safn þetta eftir sinn dag, og var það sent hingað að honum látnum. Er einkum góður fengur í úrklippusafninu, sem er mikið fyrirferðar og snyrtilegt að frágangi, allt fest inn í þar til gerðar bækur. Dr. Ragnar Lundborg átti allmikið safn bóka og ritlinga um þjóðarétt og skyld efni og var dánargjöf hans til Landsbókasafnsins hluti úr þessu safni. Fyrir atbeina dr. Helga Briem, sendiherra íslands í Stokkhólmi, var Landsbókasafninu gefinn kostur á að eign- ast með mjög vægu verði þann hluta safnsins, er því var ekki ánafnaður í erfðaskránni, og var því boði tekið með þökkum. Safn þetta er samtals um 2500 bindi og verður það í sérstakri deild. a. m. k. fyrst um sinn. Handrítasafninu hafa borizt margar og góðar gjafir á árunum 1953—54. Skal fyrst nefnd mjög kærkomin gjöf frá frú Elenore Sveinbjörnsson, ekkju Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds, sem nú á heimili í Kan- ada, komin á níræðisaldur. Með bréfi til forsætisráðherra tilkynnti hún á síðastliðnu sumri, að hún gæfi íslenzku þjóðinni öll eftirlátin handrit manns síns, en flest þeirra hafa verið geymd fullan aldarfjórðung í lokuðum kassa í Landsbókasafninu. Frúin sendi jafnframt Landsbókasafninu fagurlega ritaða skrá um öll tónverk manns síns, prentuð og óprentuð, myndir og fleiri minjar, þar á meðal heiðurspening úr gulli, sem konung- ur íslands og Danmerkur sæmdi Sveinbjörn 1874 fyrir lagið við „Ó, guð vors lands“. í safni þessu eru auk handrita að tónverkum Sveinbjörns nokkrar ritgerðir eftir hann um tónlist, kvæðaþýðingar og fleira. Einnig er þar mikið safn greina úr blöðum og tímaritum, er geyma dóma samtíðarinnar um tónskáldið og störf hans. Er mikill fengur Handritasaínið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.