Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 125

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 125
125 SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON TÓNSKÁLD Ari síðar kom hann enn vestur um haf, en hafði þá skamma viðdvöl. Seint á sumri 1919 tók hann sig upp með fjölskyldu og fluttist til Winnipeg og var ætlun hans að setjast þar að fyrir fullt og allt. Hann var þá farinn að þreytast á kennslustörfunum, enda orðinn aldraður maður, 72 ára gamall. Hann hafði og misst mest allar eigur sínar. Róðurinn var honum orðinn þungur í Skotlandi. Vestur-íslendingar reyndust honum vel í ellinni og styrktu hann fjárhagslega. Það var og þeim að þakka, að íslenzka ríkið veitti honum ríflegan lífeyri til æviloka. Hann fluttist þá búferlum til Reykja- víkur haustið 1922. Er hann mér minnisstæður frá þeim tíma: virðulegur og göfug- mannlegur öldungur, ern og fjörmikill. Hélt hann áfram að semja lög og æfði stúdenta- kórinn. Ég kynntist honum því miður ekki persónulega, utan þess, að atvikin réðu því einu sinni, að við drukkum saman kaffi í kaffihúsi. Ég spurði hann um Leipzig og nám hans þar. Hann bar því þá við, að minnið væri farið að bila. Ég spurði hann, hvort Reinecke hefði einnig kennt honum hljómfræði og kontrapunkt. Hann svaraði því. að þetta hefði hann mest lært af sjálfsdáðum. Hann kvaðst hafa lært tvær bækur í þessum efnum, sem hann nefndi, og leyst verkefnin í þeim, og bætti síðan við: „Sá, sem hefir lesið þær og skilið, kann mikið.“ Þetta bendir til þess, að Sveinbjörn hafi ekki látið sér nægja þá þekkingu, sem hann hafði fengið í Kaupmannahöfn og Leipzig, heldur haldið áfram námi upp á eigin spýtur. Tónsmíðar hans bera þess vitni, að ekki hefir þetta verið neiini yfirborðslestur, því að, eins og Holger Wiehe, sem eitt sinn var danskur sendikennari hér í Reykjavík, segir í bók sinni um íslenzka tónlist, þá hefir kunnátta Sveinhjarnar verið mikil. Hann tekur til orða á þessa leið: „Han har sin Teknik i Orden.“ Sveinhjörn hefir ekki kunnað allskostar vel við sig í Reykjavík, því hann fór til Kaupmannahafnar árið 1923 og bjó þar til æviloka. Og svo var það einn dag, 23. febr. 1927, er hann að vanda sat og lék á hljóðfærið, að það heyrðist þagna snögglega. Þeg- ar að var komið, var hann örendur. Er það sönnu næst, að hvorki hann sjálfur né aðrir hefðu óskað honum betri dauðdaga en einmitt við hljóðfærið, þar sem hann hafði setið lengst og unað sér bezt. Voru jarðneskar leifar hans fluttar hingað til Reykjavíkur og jarðsettar með mikilli viðhöfn að viðstöddu fjölmenni. Þá vil ég fara nokkrum orðum um tónsmíðar hans. Skoðun mína byggi ég vitanlega á þeim hluta þeirra, sem ég þekki, en það eru sönglögin, sem hann samdi við íslenzk kvæði, nokkur fiðluverk og píanótónsmíðar. Ennfremur nokkur sönglög við enska texta. Hljómsveitarverkin þekki ég ekki. Eins og áður er tekið fram, þá samdi Sveinbjörn lagið við lofsönginn „0, guð vors lands“ 27 ára gamall að beiðni Matthíasar. Sveinbjörn var tregur til og mun hafa van- treyst sjálfum sér til að ná því flugi, sem er í kvæðinu. Hann gerði samt tilraun, sem tókst svo sem kunnugt er. Þjóðin hefir ósjálfrátt gert lagið og kvæðið að þjóðsöng sín- um. Það svnir bezt, hversu sterkan hljómgrunn það hefir fundið í hjörtum okkar íslend- inga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.