Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 132

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 132
132 BALDUR ANDRÉSSON Eg geri ráð fyrir, að Sigfús hefði þá getað vitnað í aðrar tónsmíðar eftir hann, sem eru þróttlitlar. Hvorar tveggju ei*u til og fer þá eftir því, sem textinn gefur tilefni til. Sveinbjörn klæddi ekki Jjjóðlagið í íslenzkan búning, heldur færði hann það í erlend- an viðhafnarbúning. Hin rammíslenzku sérkenni þjóðlagsins runnu honum ekki svo í merg og blóð, að þau lituðu tónsmíðar hans. Hann varð því ekki íslenzkur Grieg. En hann er sjálfstæður, og tónsmiðar hans, sem ég þekki, eru svo greinilega markaðar per- sónu hans, að ráða mætti i höfundinn, þótt nafnsins væri ekki getið. Sveinbjörn var gáf- að, ljóðrænt tónskáld rómantísku stefnunnar, og eru beztu sönglögin hans svo vel gerð, fögur og sönn, að ekki yrði fram hjá þeim gengið í úrvali þess bezta, sem enn hefir komið fram með þjóðinni í sönglagagerð. Þau eru vígð til langlífis. Eg man vel eftir Sveinbirni hér í Reykjavík, áður en hann fór alfarinn til Kaupmanna- hafnar: — virðulegur öldungur, silfurhvítur fyrir hærum, gáfulegur og göfugmannleg- ur. Hann var í senn fyrirmannlegur og ljúfmannlegur, en reyndist þungur á bárunni, þegar kastaðist í kekki í tónlistarlífinu og honum fannst sér misboðið. Útlendingur hef- ir lýst honum þannig: „Við, sem kynntumst manninum sjálfum síðar, fundum, að hann var listamaður af lífi og sál. Hann var hæverskur og yfirlætislaus í framgöngu, eins og miklir menn einir geta leyft sér að vera, án þess að minnka í áliti manna. Hann var sann- menntaður maður og hjartahreinn“ (Dagbladet, Kaupmannahöfn 1909). Eins og geta má nærri, var Sveinbirni sýnd margs konar viðurkenning í lifanda lífi. Kristján konungur IX gaf honum heiðurspening úr gulli 1874 fyrir hátíðarsönglagið. Friðrik konungur VIII sæmdi hann stórriddarakrossi Dannebrogs-orðunnar fyrir Kon- ungskantötuna, að loknum hljómleikunum í Kaupmannahöfn 1909. Hann heiðraði og tónskáldið á þeim hljómleikum með návist sinni og drottningarinnar. Ennfremur voru systur konungsins, Alexandra Englandsdrottning og María keisaraekkja frá Rússlandi, viðstaddar, ásamt mörgu öðru stórmenni. Arið 1911 veitti Friðrik VIII konungur hon- um prófessors nafnbót. Hann hafði loks heiðurslaun úr ríkissjóði ævilangt, svo sem áð- ur hefir verið skýrt frá, og var stórriddari Fálkaorðunnar. Enn er mikill hluti verka hans óprentaður. En nú hefir ekkjan gefið íslenzku Jjjóð- inni til fullrar eignar handritin af verkum hans. Mun þjóðin ætíð minnast Jjess með Jjakklæti. Handritin eru nú geymd í Landsbókasafninu, ásamt ýmsum fleiri minjum. er varða ævi tónskáldsins og starf. Mér þykir sennilegt, að hinir erlendu forleggjarar hafi eignazt útgáfuréttinn að þeim tónsmíðum Sveinbjarnar, sem Jjeir gáfu út. Til skamms tíma átti Wilhelm Hansen, Musik-Forlag í Kaupmannahöfn, útgáfuréttinn að þjóð- söngnum. Nú er liann eign íslenzka ríkisins, eins og áður er getið. Meðan handritunum að hinum óprentuðu verkum tónskáldsins hafði ekki verið ráðstafað, fékk enginn í þau að hnýsast. Nú hafa menn aðgang að þeim í Landsbókasafninu. En Jjar við má ekki láta staðar numið. Það Jjarf að hefjast handa um útgáfu þeirra, því þá fyrst fær almenning- ur greiðan aðgang að þeim. Fyrr er ekki að vænta, að fiðlusnillingar okkar Ieiki fiðlu- sónötuna hans eða hljómsveitin okkar rhapsodíurnar og önnur hljómsveitarverk hans. Það stæði næst Alþingi að veita á fjárlögum styrk til þessarar útgáfu. Annað væri ekki sæmandi, Jjegar öndvegistónskáld okkar og höfundur Jjjóðsöngsins á í hlut.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue: Megintexti (01.01.1955)
https://timarit.is/issue/230845

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

Megintexti (01.01.1955)

Actions: