Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 8
8
LANDSBÓKASAFNIÐ 1965
Handritadeild Af verkefnum, sem unnið var að í handritadeild safnsins, skal
að þessu sinni einkum nefna Skrá um aldur liandrita í Lands-
hókasajni íslands, er þeir Lárus H. Blöndal og Grímur M. Helgason sömdu. Skráin
tekur til handrita frá elztu tíS til 1800, 3582 handrita alls. Skrá þessi verSur síSar
væntanlega birt eða a. m. k. skýrt frá helztu niðurstöðum hennar.
Landsbókasafn átti í árslok 1965 alls 11832 handritabindi, og höfðu safninu bætzt
á árinu 136 bindi. Fáein handrit voru keypt, en miklu fleiri gefin, og skal nú getið
nokkurra:
MenntamálaráSuneytið ákvað á árinu að festa kaup á öllum handritum Björgvins
Guðmundssonar tónskálds og fela Landsbókasafni varðveizlu þeirra. Frú Hólmfríður
GuSmundsson, ekkja Björgvins, afhenti síðan handritin 23. júní. Frá þessum góða
feng er nánara skýrt síðar í Árbókinni í skrá um handrit Björgvins GuSmundssonar
og grein um hann eftir Jón Þórarinsson tónskáld.
Sr. Benjamín Kristjánsson gaf m. a. sagnaþætti ýmsa eftir Gísla KonráSsson og
kvæði eftir sr. Friðrik FriSriksson, en hann hafði eignazt þetta hvort tveggja á ferð-
um sínum um íslendingabyggðir vestan hafs. Sr. Benjamín færði safninu jafnframt
frá frú Steinunni Inge í Foam Lake, Saskatchewan, 41 bréf Stephans G. Stephans-
sonar til Jakobs J. Norman í Wynyard, bróður Steinunnar, auk tveggja minjagripa
úr eigu Jakobs.
DavíS Björnsson, bóksali í Winnipeg, hefur á þessu og fyrra ári enn sent Lands-
bókasafni handrit í safn sitt til viðbótar þeim, er áður voru komin.
Jóhann Gunnar Olafsson, bæjarfógeti á IsafirSi, gaf „Rímur af Þorsteini Aust-
fyrðing kveðnar af R. Magnússyni árið 1883 Kyrkjubóli Laugadal“.
Frú Ragnhildur Líndal Wiese gaf Rímur af Þjalar-Jóni eftir föðurafa sinn, Benedikt
Einarsson í Hnausakoti, og með hendi hans. Gjöf þessari fylgdu og fáein gögn föður
hennar, Hjartar Líndals, hreppstjóra að Efra-Núpi í Miðfirði.
Frú Anna Eiríkss gaf bréfasafn Halldórs Daníelssonar hæstaréttardómara, ennfrem-
ur sendibréf til Halldórs Kr. FriSrikssonar yfirkennara. SitthvaS fleira fylgdi gjöf
hennar, svo sem Póesíbók fröken Thoru Friðriksson og ættjarðarljóð eftir Gest Páls-
son með hendi hans sjálfs, áður óbirt, að því er ætla má.
Haraldur SigurSsson bókavörður gaf tvö bréf frá Steini Steinarr til gefanda.
í dánargjöf Gunnars H. Róbertssonar, er áður getur, var mikill fjöldi handrita.
KveSur þar mest að leikritum, er Gunnar hafSi ýmist frumsamið, þýtt eða hann
unnið úr kunnum skáldverkum. AS auki eru nokkur kvikmyndahandrit, ritgerðir,
blaðagreinar, fyrirlestrar o. fl.
Loks er bréfasafn Gunnars og þar hjá m. a. samningar, er varða leikstjórn hans
og höfundarrétt á ritum Jóhanns Sigurjónssonar. Er þess þá og að minnast, að Gunnar
hafSi áður gefiS Landsbókasafni handrit Jóhanns Sigurjónssonar og fleiri góðar
gjafir.
Frú Heba Geirsdóttir gaf hingað bréf og ýmis önnur gögn úr dánarbúi manns
síns, prófessors Alexanders Jóhannessonar.