Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Side 9
LANDSBOKASAFNIÐ 1965
9
Af eldri gjöfum, sem hefur ekki verið getið áður í Árbók eða þá mjög lauslega,
skal nefna þessar:
Einar Baldvin Guðmundsson, skrifstofumaður í Reykjavík, gaf margvísleg gögn
úr fórum föður síns, Guðmundar Davíðssonar á Hraunum í Fljótum. Eru þar m. a.
Dagbækur Guðmundar um alls tæp 30 ár; kvæði, mjög merkilegt vísnasafn, rímur,
þjóðsögur, ættfræði og m. fl.
Börn Þorsteins Erlingssonar og Guðrúnar Erlings, frú Svanhildur og Erlingur
læknir, gáfu Landsbókasafni fyrir nokkru margs konar handrit og gögn úr fórum
föður síns. Þessi merkilega gjöf hefur nú verið skráð, og skýrir Grímur M. Helgason
nánara frá henni annars staðar í þessari Árbók.
Kristján Eldjárn þjóðminjavörður afhenti síðla árs 1964 ýmis handrit Tryggva
Sveinbjörnssonar sendiráðunautar og rithöfundar, er lézt 31. júlí 1964. Hafði Þor-
steinn Sveinbj örnsson, sonur Tryggva, sent Kristjáni þau. Er hér einkum um að ræða
leikrit og ýmis bréf, sem þeim eru tengd; ennfremur mikið af blaðaúrklippum varð-
andi þau leikrit Tryggva, er sett hafa verið á svið.
Landsbókasafn Islands færir öllum gefendum handrita beztu þakkir.
Heimsókn Hinn 17. ágúst komu hingað til lands Roger Powell, hinn kunni
brezkra sérfræSinga brezki bókbindari, og David Baynes-Cope, efnafræðingur frá
British Museum. Roger Powell kom á vegum British Council,
en íslenzka menntamálaráðuneytið stóð að för efnafræðingsins.
Þeir félagar dvöldust í Reykjavík um það bil tvær vikur og kynntu sér aðstæður
allar til varðveizlu og viðgerðar handrita, skjala og þjóðminja í Landsbókasafni,
Þjóðskjalasafni og Þjóðminjasafni, en ræddu jafnframt við forstöðumann Handrita-
stofnunar Islands og byggingarnefnd hennar.
Þeir félagar skiluðu síðar á árinu rækilegri skýrslu og tillögum.
Þess má geta, að Roger Powell flutti 25. ágúst erindi í I. kennslustofu Háskólans
um Book of Kells og lýsti viðgerð sinni á henni fyrir nokkrum árum. Urðu margir
til að hlýða á erindi hans.
Myndadeild Þess skal getið með þökkum, að Hugvísindadeild Vísindasjóðs
veitti safninu fimmtíu þúsund króna styrk til kaupa á mjög full-
kominni myndavél og ljósabúnaði. En við tilkomu þessara tækja hefur aðstaða mynda-
deildar til allrar vandasamari myndatöku batnað til mikilla muna.
Myndataka og úrvinnsla fer nú hvort tveggja fram í Safnahúsinu, þar sem mynda-
gerðarmaðurinn hefur fengið herbergi í kjallara til úrvinnslunnar, en þurfti áður
að fara af bæ til þeirra hluta.
Unnið var að ýmiss konar myndagerð á vegum Landsbókasafns og Þjóðskjalasafns,
en auk þess voru afgreiddar myndir til um tvö hundruð annarra stofnana og ein-
staklinga, innlendra og útlendra.