Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Page 97

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Page 97
VÖLUSPÁ KONUNGSBÓKAR 97 heldur aS vænta: Frillur ása voru herbragð jötna, sem var því annaS í hug en taka fyrir spillinguna. Æsir vakna viS vindhögg sitt og skilja nú, aS alvara er á ferSum. Ljóst er, aS í dvergaþætti Völuspár (9.-16. v.) eru tvö dvergatöl: Dvergatal I (11. og 12. v.) og Dvergatal II (13. og 15. v.). I hinu fyrra eru 29 nöfn, en 32 í hinu síS- ara. I Dvergatali I og II eru því alls 61 nafn. Ohjákvæmilega minnir þetta á vísna- fjölda Völuspár: 61 vísu. Reyndar eru mismunandi dverganöfn ekki nema 59, þar eS tvö eru tvítekin (Ai og Eikinskjaldi). En mismunandi vísur Völuspár eru ekki heldur nema 59, þar eS ein er þrítekin (þriSja stef). Þegar þessa er gætt — og hins, hversu römmum böndum dvergar eru bundnir öllum skáldskap, — hvarflar aS sú hugsun, aS skáldiS hafi — m. a. af trúarlegum ástæSum — miSaS fjölda nafna í sveitum dverga viS lengd kvæSisins. Þetta verSur enn líklegra, ef nánar er aS gætt. Nú hefi ek dverga rétt of talða, segir í 12. vísu. I Dvergatali I (11. og 12. v.) eru 16 -þ 13 nöfn og í Dvergatali II (13. og 15. v.) 15 -j- 17 nöfn. Sé nú nöfnum dvergatala raSaS á vísur Völuspár í réttri röS, kemur í ljós staSreynd, sem er e. t. v. ekki tilviljun. 16 nöfn 11. vísu lenda aS sjálf- sögSu á 16 fyrstu vísum kvæSisins. Þá lenda 13 nöfn 12. vísu á 17— 29. vísu og 15 nöfn 13. vísu á 30.-^14. vísu, en 17 nöfn 15. vísu endast frá 45. vísu til síSustu vísu Völuspár. MeS 17. vísu (en á henni lendir 1. nafn 12. vísu) hefst sköpun mannsins. 30. vísa (= 1. nafn 13. vísu, þ. e. 1. nafn hersveitar) fjallar um liSsöfnun ása. En 45. vísa ( = 1. nafn 15. vísu) er þriSja stef, þar sem þaS kemur fyrir í annaS sinn. Þetta stef, sem er síSasta vísa þrenningarinnar „A varSbergi“ endurtekin, er upphaf stefjabálks, sem fjallar um ragnarök (45.-54. v.), og segir þar fyrst frá sókn jötna. Ef gert er ráS fyrir, aS fjöldi nafna og vísnaskipting dvergatala sé vísbending af hálfu skáldsins (Sbr. rétt of talða, 12. v.), þ. e. aS fyrsta nafn 12., 13. og 15. vísu sé ávísun á sérstakt efni, má af því ráSa — fyrir fram — hlutverk mannsins í veröld- inni: 1) Æsir skapa manninn sér til trausts í fyrirsjáanlegum þrengingum (Sköpun mannsins). 2) Æsir ætla aS velja úr hópi manna einvalaliS (LiSsöfnun ása). 3) Ein- herjar eiga aS berjast viS jötna í ragnarökum (Sókn jötna og ragnarök). — SkáldiS virSist sjá í örlögum dverga — og boSa — sköpun mannsins. SamanburSur á merkingu einstakra dverganafna — aS svo miklu leyti sem merking er ljós — og efni einstakra vísna Völuspár er fróSlegur, en e. t. v. vafasamur. Þess var ekki aS vænta, aS til væru dverganöfn, sem aS merkingu ættu viS allt efni Völuspár, og naumast, aS þau yrSu smíSuS í því skyni. Nokkur dæmi benda þó til, aS skáldiS hafi leitazt viS aS hafa samræmi í þessu efni. Nöfnin, sem fylgja 17. og 18. vísu, sköp- un mannsins, eru Veigr ok Gandalfr (12. v.). Víst hafa æsir ætlazt til, aS liS væri í manninum. Og var hann ekki gerSur úr rekaviSi? Hefti (13. v.) fylgir 34. vísu, en hún byrjar á orSunum: Haft sá hón liggja. Af hringnum Draupni drupu aSrir hring- ar jafnhöfgir, eins og kunnugt er. Dvergurinn, sem ber þetta nafn (15. v.), fylgir 45. vísu, þriSja stefi endurteknu. Vel mega þessi dæmi — og fleiri •— vera tilviljanir, en hvernig sem því er háttaS, hefur skáldiS látiS önnur sjónarmiS en samræmi af þessu tagi ráSa röS sumra nafna. ÞaS þykist ég sjá á fyrstu nöfnum Dvergatals I, en þau eru: 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.