Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Side 140

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Side 140
140 U M HANDRIT ÞORSTEINS ERLINGSSONAR Næst verða fyrir óprentuð kvæði Þorsteins í eiginhandarriti hans. Hefir þeira verið raðað í stafrófsröð eftir upphöfum. Sum þessara kvæða mun Þorsteinn sjálfur hafa dæmt ónýt, en þó ekki tímt eða fengið sig til að fleygja. Um þetta segir Sigurður Nor- dal í formála sínum fyrir útgáfu Þyrna 1943, bls. VI-VII: „Áður en gengið var frá þessari útgáfu, var enn á ný farið vandlega yfir öll kvæði, vísur og kvæðabrot Þor- steins, sem til náðist og höfðu ekki verið tekin í 3. útg. Niðurstaðan af þeirri athugun varð viðbót þeirra sex vísna og kvæðabrota, sem þegar er getið. Fleira þótti ekki ástæða til þess að taka. Um sumt var vitað, að höfundurinn vildi ekki láta prenta það í Þyrnum. Hitt var nær undantekningarlaust tækifæriskvæði, en af þeim þótti þegar nægilega mikið í 3.útg. Oftast má finna það gjörla,hvort þau eru einungis ort afgreiða- semi eða yrkisefnin hafa á einhvern hátt snortið Þorstein. Hann varsjálfurþeirrarskoð- unar, að látnum skáldum væri enginn greiði gerður með því að tína allt, sem hönd á festi, til í ljóðabækur þeirra. Síðari tíma menn ráða vitanlega, hvað þeir gera. En óskandi væri, að þeir færu varlega í að ganga um þetta algjörlega gegn vilja skáldsins.“ Varnaðarorð Sigurðar eru vissulega réttmæt. Gæta ber varúðar í þessum efnum sem öðrum. Hitt er jafnvíst, að mjög fróðlegt er að kynnast þeim tilraunum, sem skáld- in gera, fá að sjá, hvað þau velja, hverju þau hafna; og ekki þarf það að rýra gildi hinna betri og kunnari ljóða. Við nálgumst ljóðasmiðinn þeim mun betur og þykir vænt um það öðrum þræði að sjá hann klæðast öðru en skjaldhafnarflíkum. Á þetta ekki sízt við um slíkt snyrtiskáld, sem Þorsteinn var. Með handritum þeim að kvæðum Þorsteins, sem hér hefir verið fjallað um, hafa einnig verið látin fljóta smáprent og úrklippur með kvæðum eftir hann, og gerir það safnið fyllra (Lbs. 4172, 4to). Þorsteinn hefir vandað mjög til sögulegra kvæða sinna. Hefir hann lagt á sig niikla vinnu við að afla sér sem gleggstrar vitneskju um sögupersónur þær, sem hann hugð- ist yrkja um hverju sinni. Einkum er vert að geta aðdrátta að kvæðabálkunum um Fjalla-Eyvind og að Eiðnum (Lbs. 4173, 4to). Átti Þorsteinn drjúgar setur á söfnunum í þessu skyni og skrifaði mönnum í leit að upplýsingum, einkum um Fjalla-Eyvind. Tók hann sér einnig ferð á hendur til þess að kanna að minnsta kosti einhverjar þær slóðir, sem Eyvindur hefir ef til vill farið um. Guðrún kona hans fór með honum þessa för, sem stóð hálfan mánuð, frá 26. júlí til 12. ágúst 1910, en þann tíma hefir Þorsteinn haldið dagbók. Eins og að líkum lætur, hafa margir orðið til að senda Þorsteini ljóð sín, sumir í vináttuskyni, aðrir til birtingar í þeim blöðum, sem hann stýrði. Auk þess hafa að honum dregizt ljóð og Ijóðahandrit eins og öðrum þeim, er slíku unna. Kvæði af þessu tagi (Lbs. 4174, 4to) eru sum hver í eiginhandarriti höfunda, t. d. eftir Benedikt Sveinbj. Gröndal, Jón Olafsson ritstjóra, Ólöfu frá Hlöðum (sumt í sendibréfum) og Stephan G. Stephansson (Ramislagur, eldri gerð). Með liggur eilítið af smáprenti. Þjóðsögur þær og sagnir (Lbs. 4175-4476, 4to), sem Landsbókasafni hafa nú á- skotnazt úr fórum Þorsteins, hefir hann ýmist sjálfur fært í letur eða aðrir. Margar þessara sagna hafa verið gefnar út á prent. Þorsteinn gaf sjálfur út þjóðsagnakver í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.