Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Qupperneq 122
122
ÚR FÓRUM BENEDIKTS FRÁ AUÐNUM
ef nokkuð væri nýtilegt. En þessa á milli er eg aptur brennheitur af áhuga, trausti og
von .... Já hara það sjáist að við höfum til einhvers lifað, og þó það sjáist ekki
bara það reynist svo.“
Snorri Oddsson bóndi á Geitafelli 1/8 1886:
„ . . . eg hefði meir enn gaman að finna þig að máli, það er að segja ef eg hefði
þá nægan tíma, það stendur æfinlega í mér fyrst, svo ertu stundum svo glannalegur
að dauðrota mig 1 fyrsta höggi.“
Ennfremur skrifar Snorri 13/7 1890:
(Eiginkonan liggur mjög veik af lungnabólgu. Læknirinn kom í nótt og Baldvin
Sigurðsson smáskammtalæknir í Garði.)
„Kannskje þið hjónin kinnuð gott ráð í þessari veiki. Við höfum einhverja blin(d)a
trú (á) ykkur, þó þori eg ekki að gera ykkur eða (öllu) heldur Guðnyu það omak
að biðja hana að kom(a) - er líklega lasin“.
Jóhannes Þorkelsson á Syðra-Fjalli 4/4 1891:
„Mér skilst á bréfi þínu (5/3 1891), að þú sért ekki neitt sérlega unnandi prestun-
um, og þú myndir vilja fækka þeim um helming, eða vel það, og ef þú ættir að segja
allan hug þinn mundirðu, ef til vill álíta að „öxin og jörðin“ geymdi öll þeirra em-
bætti hezt. Nógu vel! - Enn hinn færasti vegur til þess held ég nú einmitt að sé sú
stefna, sem tekin er með tillögu minni: að fá þeim smámsaman svo mikið að starfa í
þarfir ríkisins (þjóðfélagsins), að þeir, er tímar líða fram, smáhverfi úr sögunni sem
prestar, enn verði fræðendur þjóðarinnar í almennum menntandi fræðum.“
Sami skrifar 16/12 1895: Um lausavísur og rímur.
„ . . . . sönglistin .... er sá úlfur er á síðustu 30 árum hefur farið gapandi munni
um land vort, og sólgið kveðskapinn - kvæðalögin .... þegar hætt er að kveða er auð-
vitað hætt að fást við þá grein skáldskaparins sem eiginlega er til þess gjörð, að hún
sé kveðin ....“
Sami skrifar 15/3 1926:
„Areiðanlega ættirðu það skilið að einhver hefði rétt þér hjálparhönd með línu
í Ófeigi. En í þessu tilfelli kýs ég engan frekar þér, og þar ertu nærri sjálfkjörinn og
þarft engann kvíðboga að bera fyrir áhrifaleysi orða þinna. Vil ég því biðja þig að
sleppa mér lausum við þetta .. .“
Hermann Jónasson skólastjóri, Hólum 16/10 1891:
„Þú talar um í hréfi þínu í vor að þú „gutlir sinn daginn í hverju“ sem orsaki van-
rækslu á heimili konu og börnum. En það er ekki gaman að komast hjá þessu gutli ....
En af því að okkur vantar menn til alls, þá er sárt ef ekki getur orðið almennt gagn
að hæfileikum þínum og menntun. Þú hefir of mikið hugsað um þitt hérað í stað þess