Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1972, Page 12
12
LANDSBÓKASAFNIÐ 1971
Vér þökkum Pétri Haraldssyni, er var húsvörður 1966-71, ágæt störf á þessum
árum.
María Gísladóttir aðstoðarbókbindari lét af störfum á árinu vegna veikinda, og
var Unnur Guðmundsdóttir ráðin í hennar stað.
Vér þökkum Maríu vönduð störf hennar um langt árabil.
AÐSÓKN Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og handrita, um les-
endafjölda, útlán og tölu lántakenda:
Flokkur
1971
000 8.738 bindi
100 ............................................. 287 -
200 ......................................... 268 -
300 ........................................... 2.333 -
400 ........................................... 1.051 -
500 ........................................... 1,249 -
600 ............................................. 683 -
700 ............................................. 190 -
800 ........................................... 2.900 -
900 ........................................... 4.146 -
Samtals 21.845 bindi
Handrit 4.043
Lesendur 13.359
Útlán 1.220
Lántakendur 288
Árið 1968 var því hreyft suður í Sviss, að stofnað yrði Samband
evrópskra rannsóknarbókasafna, er beitti sér fyrir aukinni sam-
vinnu slíkra safna. Var brátt komið á fót bráðabirgðastjórn
sambandsins, er nefnist á frönsku Ligue des Bibliothéques
Européennes de Recherche (skammstafað LIBER). Formaður var J. P. Clavel, for-
stöðumaður Fylkis- og háskólabókasafnsins í Lausanne í Sviss.
Síðla árs 1969 var 294 evrópskum rannsóknarbókasöfnum skrifað um þetta mál
og leitað tillagna þeirra um heppilegustu skipan þess. Niðurstaðan varð sú, að bráða-
birgðastjórnin sneri sér til Evrópuráðsins, er féllst á að styðja sambandið á fyrstu
göngu þess a. m. k. Fyrir því kvaddi Evrópuráðið saman til fundar í Strasbourg
dagana 17. og 18. marz 1971 nær 20 fulltrúa evrópskra þjóðbókasafna eða háskóla-
bókasafna, og urðu 16 fulltrúar til að sækja fundinn, meðal þeirra undirritaður að
hálfu Landsbókasafns.
SAMBAND
EVRÓPSKRA
RANNSÓKNAR-
BÓKASAFNA