Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 7

Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 7
auka hatur milli Dana og Svía og stofna til fjárhagsvandræða og megnrar óánægju með stjórn konungs. Varð það úrræði konungs að' leita. sátta við gamlan fjandmann föður síns, þá landflótta, aðalsmanninn Peder Oxe og gera. hann að fjármálaráðgjafa sínum, en Oxe var mikilhæfur fjármálamaður og tókst honum að koma fjármálum ríkisins í lag, meðal annars með því að hækka Eyrarsundstollinn og koma nýju skipulagi á um veitingu og meðferð konungs- léna. Var svo metið að hann hefði með röngu móti dregið undir sig (iO ]nis. Jóakimsdala og mátti mikið kallast, áður en hann færi í útlegð'- ina, en nú koniu gáfur hans til fjárplógs og fjár- stjórnar ríkinu að góðu haldi. Munu þeir Peder Oxe og Friðrik konungur hafa átt hið bezta saman, því að báðir voru hneigðir til fjárafla. Þarf varla að efa að Oxe hafi styrkt konung rækilega í áformum hans um að ná sem beztum fjárhagslegum árangri af viðskiptunum við’ ís- land, enda varð árangurinn mikill og góður. Þegar litið er á verzlunarpólitík Friðriks II. hér á landi kemur í Ijós, að hann hugsaði fyrst og fremst um það', að hafa af henni sem mestar tekjur í konungssjóð. En ísland lá þá og hafði legið alla tíð síðan á dögum Magnúsar Eiríks- sonar smeks til einka féhirzlu konungs (fata- búrsins, sem kallað var). Reynsla föður hans benti til þess, að bæði var örðugt að útiloka er- lenda kaupmenn frá siglingu hingað, enda voru Da.nir enn ekki þeim vanda vaxnir, að annast þessi við'skipti, sízt með þeim hætti, að gjalda jafnframt þá leigu fyrir verzlunarleyfin, sem konungi líkaði. Þó hlaut efling hinnar dönsku verzlunar hér að koma í annarri röð. Lokatak- markið var að koma allri verzluninni á danskar hendur, en það hlaut að taka nokkurn tíma og á meðan hin danska verzlunarstétt var að sækja í sig veðrið, var um það eitt að gera að' reyna að hafa sem mest upp úr siglingu hinna. erlendu kaupmanna. Þegar Friðrik II. fór fyrir alvöru að snúa sér að Islandsverzluninni, lét hann Pál Stígsson höf- uðsmann semja handa sér fullkomna skýrslu um verzlun og hafnir hér á landi. Hér hlaut auðvit- að í ljós að koma, að hafnirnar voru misjafn- lega arðvænlegar. Sagnaritarar hafa bent á það, að Friðrik II. ha.fi fyrstur konunga tekið upp þann hátt, að binda verzlunarleyfi við tilteknar hafnir, þannig að verzlunarleyfið var jafnframt einkaleyfi til verzlunar á hinni tilteknu höfn um þann tíma, er leyfið gilti. Þó aðferð þessi væri að vísu í fyrstu upp tekin til þess fyrst og fremst að' bægja samkeppni frá þeim s'töðum, er Danir reyndu að verzla á, þá hlaut brátt að koma í ljós, er aðferð þessari var víðar beitt, að keppnin um beztu hafnirnar, er áður var háð milli kaupmannanna sjálfra innbyrðis, varð nú að trompi á hendi konungs sjálfs. í stað þess deila eða semja um þetta efni hver við annan, urðu kaupmennirnir nú að bjóða liver í kapp við annan, ef þeir vildu ná tangarhaldi á tilteknum höfnum, og þessi leikur hlaut svo að endurtaka sig að leigutímanum liðnum, en hann var sjaldan lengri en 2—4 ár. Með þessum hætti tor verzlunarleigan í heild sinni mjög hækkandi, enda venja að sæta hæsta boði, hver sem í hlut átti. Þó má sjá þess dæmi, að dönskum kaup- mönnum var ívilnað um leigu. Leituð'u Ham- borgarar fast eftir að fá þessu kippt í sitt fyrra horf, en um slíkt var alls ekki að ræða. Urðu um þetta hörð átök með konungi og Hamborg- urum, svo að um 5 ára bil, frá 1574—79, voru Hamborgarar með öllu útilokaðir frá verzlun í öllu Danaveldi. Hafði konnngnr sitt fram, enda var löngum mikill rígur milli hinna þýzku kaup- manna, er hingað sóttu mest á ofanverðri 16. öld, Hamborgara, Lýbíkumanna og Brimara, og gat konungur notað' sér ósamþykki þeirra og ríg sem á milli var. Baráttan við Þjóðverja Hér skal ekki nánara vikið að deilum þeim og togstreytu. er urð’u um einstakar hafnir á þess- um tíma. Það yrði of langt mál og flókið, enda tæplega auðið að gera það, svo að fullt yfirlit fengist um verzlunina á öllum höfnum landsins. Þrátt fyrir þær breytingar, sem leiddi af hinu nýja fyrirkomulagi um leigu einstakra hafna á dögum Friðriks II., mátti enn milli 1580—90 finna. vott þess, hvernig verzlun landsins skipt- ist milli hinna erlendu verzlunarborga að fornu fari. Hamborgarmenn höfð'u einkum hafnir við Faxaflóa, en þar var Hafnarfjörður höfuðsetur þeirra frá 15. öld. Lýbíkumenn héldu sig við Vestfirði, en Brimamenn á Snæfellsnesi. Þó blandaðist þetta ýmislega. Þannig höfðu Brim- arar lengi verzlun i Hólminum (Brimarhólmi) og á Djúpavogi. Norðurlandshafnirnar höfðu áður verið í höndum Hamborgara, er sóttust eftir brennisteinsverzluninni, en voru lengstum I-’IÍJÁLS VERZLUN 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.