Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 37
Nýi Gullfoss siglir inn á Reykjavíkurhöfn 20. mai 1950
lán að upphæð 40.590.000 kr. Minnsti hlutur
(25 kr. hlutur) yrði 2050 kr.
En, munu menn segja, ekki myndu tvö skip
á borð við „Gullfoss’1 og „Goðafoss“ fyrstu,
kosta neinar 115 miljónir króna. Að vísu ekki,
en eftir þeim stórhug, sem einkenndi forystu-
mennina þá, er enginn vafi á því, að' þeir teldu
nú alltof lítið að byrja aðeins með tveim skip-
um. Þeir myndu ekki telja viðlit að byrja með
minna en 4—5 skipum, og þau myndu alltaf
kosta þessa fjárhæð eða meira, með núverandi
verði. Vegna þess að flutningaþörfin er nú orðin
svo miklu meiri en þá var, væri það' lítil úrlausn
að byrja ekki með nema tveim skipum, og þeim
ekki stærri en þá var ráðgert, um 2800 brúttó-
tonn samtals.
-----o-----
Saga. siglinganna síðustu 40 árin skal ekki
rakin hér frekar. Hún yrði að mestu saga. Eim-
skipafélagsins, og þá sögu þekkja flestir ef ekki
allir landsmenn.
FR.TALS VERZLUN
01