Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 45
.....
Séð norður Aðalstræti í Reykjavík. Myndin er jrá 1867.
heiti, þar sem helmingur síofnenda var dansk-
ur. Félag þetta mun hafa starfað' eitthvað fram
um eða eftir 1880.
Styrktar- og sjúkrasjóður
verzlunarmanna í Reykjavík
Elzti starfandi félagsskapur verzlunarmanna
hér í höfuðstaðnum og reyndar á öllu landinu
er Styrktar- og sjúkrasjóðui verzlunarmanna í
Reykjavík, eða eins og hann nefndist í reglu-
gerðinni, er samin var á dönsku, — Statuter
for Reykjaviks Handelsforenings Understöttelses
°g Sygekasse. Gengið var frá stofnun sjóðsins í
samkomustað Handelsforeningen í Hafnarstræti
16, og er hann talinn stofnaður 24. nóv. 1867.
Samkvæmt fyrstu grein reglugerðar sjóðsins eru
félagar Kaupmannafélagsins einnig reglulegir fé-
lagar sjóðsins, en að'rir verzlunai’menn, sem
greiða gjald til stofnunar sjóðsins, geta einnig
orðið hluttakendur í honum.
Starfssvið sjóðsins var ákveðið verzlunarstað-
irnir við Faxaflóa, að meðtöldum Biiðúm og
Keflavík. Tilgangur sjóðsins var „að styrkja
verzlunarmenn og munaðarleysingja þeirra, sem
óverðskuldað eru sviptir atvinnuvegi sínum,
annað hvort sökum veikinda eða annarra
óhappa, er að kunna að bera og fljótar hjálpar
þarf“.
Stofnendur sjóðsins munu hafa verið' 21 að
tölu. Frumkvöðull að stofnun hans var H. Th.
Thomsen kaupmaður, og var hann kosinn fyrsti
formaður sjóðsins.
Á aðalfundi sjóðsins 1873 var eiginlega slitið
sambandinu milli hans og Kaupmannafélagsins
og öllum vérzlunarmönnum heimilað að gerast
reglulegir félagar. Fyrsta styrkveiting úr sjóðn-
um fór fram um áramótin 1870—71, og nam sá
styrkur að upphæð kr. 30.00. Hefur verið' greidd-
ur styrkur úr sjóðnum öll árin, sem hann hefur
starfað, að einu undanskildu (1875). Nema
greiddar styrkveitingar á þeim nær níutíu árum,
frá því að sjóðurin var stofnaður, hátt á fjórða
hundrað þúsund krónum.
Sjóðurinn hefur eflzt mjög síðustu árin og fé-
lagsmönnum farið fjölgandi. Nema eignir sjóð's-
ins nú nær 500 þúsund krónum.
Formaður sjóðsins er nú Helgi Bergs forstjóri.
Vöxt sinn og velgengni á sjóðurinn að þakka
vinsældum sínum meðal verzlunarmanna, svo
og áhugasamri og öruggri stjórn.
FUJALS VERZLTJN
69