Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 50

Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 50
ÞorvarSur J. Júlíusson, hagíræSingur: Hagskýrslur um verzlun landsmanna íslendingar eiga flestum þjóðum fremur af- komu sína undir viðskiptum við útlönd. Þetta liggur í augum uppi, þegar höfð er í huga lega landsins og hin fábreyttu framleiðsluskilyrði þess. Utanríkisverzlun Islands á íbúa er meiri en nokkurs annars Evrópulands. Arið 1953 var verðmæti utanríkisverzlunarinnar, þ. e. a. s. innfluttra og útfluttra vara samanlagt, 12.332 kr. á hvern landsbúa. Hér er, eins og venjulegt er, miðað við verð' varanna í skipi í íslenzkri höfn. Til samanburðar eru tilfærðar samsvar- andi tölur fyrir nokkur lönd. Verðmætin eru umreiknuð í íslenzkar krónur eftir gildandi gjaldeyrisgengi. ísland 12.332 kr. Danmörk 7.105 — Noregur 6.936 — Svíþjóð 6.974 — Bretland 5.354 — Bandaríkin 2.754 — Vöruskiptin eru yfirleitt þýðingarmesti þátt- urinn í viðskiptunum við önnur lönd, en auk þeirra fara fram viðskipti við útlönd vegna flutninga á vörum og farþegum, trygginga, ferðalaga, vaxtagreiðslna o. s. frv. Það breytir ekki verulega þessum samanburði milli landa, þótt tekið sé tillit til þessara viðskipta nema að því er Noreg snertir, enda eru tekjur Norð- manna af millilandasiglingum meiri en af út- fluttum vörum. Einn helzti mælikvarðinn á afkomu þjóðar- búsins er verðmæti þjóðarframleiðslunnar. Verð- mæti innflutningsins er að sjálfsögðu ekki talið' þar með, heldur einungis sú verðmætisaukning, sem skapast af framleiðslu landsmanna sjálfra. Sé hinsvegar upphæð innfluttrar vöru og þjón- ustu bætt við verðmæti þjóðarframleiðslunnar, fæst sú upphæð, sem landsmenn hafa til um- ráða til neyzlu, fjárfestingar og útflutnings. Það er því allgóður mælikvarði á þýðingu viðskipt- anna við útlönd, hve mikill hluti „umráðaupp- hæðarinnar“ er fluttur inn sem vörur og ýmis- konar þjónusta. Eftirfarandi tölur sýna þessa hlutdeild fyrir sömu lönd og að framan greinir: ísland .............. 32.7% Danmörk.............. 22.1% Noregur ............. 29.9% Svíþjóð ............. 17.2% Bretland ............ 17.6% Bandaríkin ............ 4-4% Island er með hæsta hlutfallið og má af því ráða, hve miklu máli skipta íyrir afkomu lands- manna kjör þau, sem bjóðast í viðskiptunum við útlönd. Nokkra hugmynd um þýðingu verzlunarinnar í þjóðarbúskapnum má fá með því að athuga, hve mikill hluti þjóðarinnar lifir á verzlun. Arið 1940 höfðu 7.2% landsmanna framfæri sitt beint og óbeint af verzlun, en 9.0% árið 1950. Ef starfandi fólki er skipt á atvinnugreinar, er hlutfall verzlunarinnar sem hér segir árið 1950: ísland ............... 8.8% Danmörk.............. 18.5% Noregur ............. 10.8% Svíþjóð ............. 15.6% Bretland ............ 14.1% Bandaríkin .......... 18.5% 74 FRJÁLS VERZLUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.