Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 49
Lárus Pétursson íramkvæmdastjóri:
Samband smásöluverzlana
Nokkru eftir síðasta stríð fóru bæði Félag
matvörukaupmanna og Félag vefnaðarvöru-
kaupmanna að athuga möguleika á að setja á
stofn skrifstofu og ráða starfsmann til að vinna
að málefnum sínum.
I ársbyrjun 1950 stofnsettu þessi tvö félög
ásamt Kaupmannafélagi Hafnarfjarðar sameig-
inlega skrifstofu.
Þetta samstarf sérgreinafélaganna þriggja
varð til þess, að stofnað var Samband smásölu-
verzlana S. n&oember 1950 og liafði þá Félag
búsáhalda- og járnvörukaupmanna bætzt í hóp-
inn. Fyrsti formaður var kjörinn Jón Helgason
og Kristján Jónsson varafonnaður. Fram-
kvæmdastjóri var ráðinn Gunnar Vagnsson. Þá
var og samþykkt að hefja útgáfu „Verzlunar-
tíðindanna“, sem síðan hafa verið málgagn sam-
takanna.
Samband smásöluverzlana er heildarsamtök
smásölukaupmanna. Samkvæmt lögum þess geta
sérgreinafélög í smásölu, hvar sem er á landinu,
félagasamtök kaupmanna í kaupstöðum eða
kauptúnum og einstakir kaupmenn orðið aðilar
að S. S. Sérgreinafélögin eru nú orðin 11 í sam-
bandinu, auk einstaklinga, með samtals rúmlega
400 verzlanir innan sinna vébanda. Aðalfundur
iivers félags kýs 1 aðalmann og 1 varamann í
stjórn S. S. Einstaklingar kjósa 1 mann, en að
alfundur S. S., sem haldinn er í apríl ár hvert,
kýs oddamann og varamann hans, sem tekur
sæti í stjórninni, þegar svo stendur á fjölda
stjórnarmanna.
Aðalfund S. S. sitja stjórn þess og stjórnir
sérgreinafélaganna. Hann hefur æðsta vald í
málefnum þess, en stjórn S. S. milli að'alfunda.
Fulltrúafundir og almennir fundir allra kaup-
manna innan S. S. eru haldnir þegar þörf kref-
ur. Stjórnin kýs sér skriflega formann, varafor-
mann og gjaldkera. Nú eiga sæti í stjórninni:
Kristján Jónsson, formaður, frá Fél. matvöru-
kaupmanna, Árni Árnason, varaformaður, frá
Fél. vefnaðarvörukaupmanna, Páll Sæmunds-
son gjaldkeri, frá Fél. leikfangasala, Ásgeir Jóns-
son, frá Fél. blómaverzlana, Axel Sigurgeirsson,
oddamaður, Björn Pétursson frá Fél. ísl. bóka-
verzlana, Eggert Olafsson frá Fél. búsáhaJda- og
járnvörukaupmanna, Gísli Gunnarsson frá
Kaupmannafélagi Hafnarfjarðar, Jón Guð-
mundsson frá Skókaupmannafélaginu, Björn
Jónsson frá Kaupmannafélagi Siglufjarðar,
Olafur Þorgrímsson frá Fél. tóbaks- og sælgæt-
isverzlana, Oskar Norðmann frá einstaklingum
og I>orbjörn Jóhannesson frá Fél. kjötverzlana.
Jón Helgason var fyrsti formaður S. S., eins
og áður segir, og til aðalfundar 1954, að hann
hætti smásöluverzlun. Jón var þá kjörinn fyrsti
og eini heiðursfélagi S. S. fyrir frábært braut-
ryðjandastarf í þágu stéttarinnar. Hann er nú
framkvæmdastjóri fyrir Vegg h.f., sem er bygg-
ingarfélag kaupmanna og stofnað á síðasta
hausti að tilstuðlan S. S.
Sambandið licfur nú bækistöð að Laugavegi
22 og hefur þar skrifstofu og lítinn fundarsal.
Skrifstofunni veitir forstöðu Lárus Pétursson,
sem verið hefur framkvæmdastjóri síðan vorið
1952.
Smásölukaupmenn á hinum Norðurlöndunum
hafa um áratugi haft sín eigin heildarsamtök og
telja sig nú ekki geta verið án þeirra. Sama
sagan hefur gerzt hérlendis. Á þeim tæpum 5
áruni, sem liðin eru frá stofnun S. S., hafa mörg
vandamálin verið leyst, enda mörg kallað að.
Kaupmenn hafa skilið gildi sinna eigin samtaka
og sýnt það' með aukinni þátttöku, og út á við
er Samband smásöluverzlana viðurkennt sem
sérstakur málsvari smásölunnar.
Samband smásöluverzlana hefur leitazt við að
hafa sem bezta samvinnu við önnur samtök
kaupsýslu- og’ verzlunarmanna og vonandi verð-
ur svo í framtíðinni, því að' hagur allrar verzl-
unarstéttarinnar er hagur smásölukaupmanna.
FRJÁLS VERZLUN
73