Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 29
Frá hálfrar aldar afmæli verzlunarfrelsisins Framhuld aj bls. 3(i. og hliðargötur voru full af í'ólki. Var Suðurgata öll troðiull upp í kirkjugarð. Var það mesti mannfjöldi, sem komið hefur saman í Reykja- víkur kirkjugarði“. (Ingólfur, II. árg., 64. bls.) Um kvöldið voru veizluhöld. Björn Kristjáns- son kaupmaður stýrði samsæti verzlunarstétt- arinnar í Iðnaðarmannahúsinu. En þeir mæltu fyrir minnum, Björn Jónsson, Jón Jakobsson um hefur samskonar áhrif á verðlagið og banka- lán umfram sparifjármyndun. Er það því einnig skilyrði fyrir haftalausri verzlun, að ríkisbú- skapurinn sé án greið'sluhalia. IJeim skilyrðum frjálsra verzlunar, sem hér hafa verið rakin, liefur sjaldnast verið fullnægt hér á landi tvo síðasthðnu áratugi og afleiðingin hefur verið haftafyrirkomulagið, sem heita mátti algert frá 1934—51 (á stríðsárunum orsökuðust höftin þó af flutningsörðugleikum, en ekki gjald- eyrisskorti) og enda þótt mjög hafi verið á þeim slakað' síðustu 3—4 árin, hefur þeim þó ekki verið aflétt enn að fullu svo sem alkunnugt er. Framkvæmd þess að halda bankaútlánum innan þeirra takmarka, sem sparifjármyndunin leyfir og hafa ríkisbúskapinn greiðsluhallausan, getur kostað margskonar óþægindi í bili, einnig fyrir verzlunarstéttina. En vilji menn af alvöru styðja málstað frjálsr- ar verzlunar, verða menn einnig að vera reiðu- búnir til þess að styðja nauðsynlegar ráð'staf- anir í þágu hennar á sviði peninga- og gjaldeyris- mála, jafnvel þótt slíkar ráðstafanir kunni að hafa í för með sér ýmiskonar fórnir og óþægindi um stundarsakir. Eftir það að verzlunarírelsið endurheimtist að verulegu leyti árið 1951, eftir nærri 20 ára óslitð haftafyrirkomulag, tóku margir verzlun- ármenn sér í munn kjörorð'ið: „Aldrei framar innflutningshöft“. A þeim tímamótum, þegar minnst er þess stóra áíanga á leiðinni til aukins verzlunarfrelsis, sem náðist árið 1855, er vel til fallið að menn fylki sér á ný um þetta kjörorð og þá um leið þær óhjákvæmilegu ráðstafanir í efnáhagsmálum, sem gera verður, ef stefna sú, sem með því er mörkuð á að ná fram að ganga. forngripavörður og loks Benedikt S. Þórarins- son kaupmaður. Sunginn var ljóðaflokkur eftir Jón Ólafsson. — Verziunarkonur komu saman á Sigríðarstöðum (við Kirkjutorg), skólapiltar í Bárubúð, en eldri og yngri stúdentar á Hótel Reykjavík. Eitt blaðið (,,Ejallkönan“) minnist á, að hin nýja, innlenda stjórn hafi lítið látið vita af sér við þetta tækifæri. En annað (,,Þjóðviljinn“) kveður verzlunarfrelsið þó svo mikilvægan at- burð', að það gangi næst endurreisn Alþingis. Víðar um landið, t. d. á Isafirði og Seyðis- firði (samkv. blöðunum „Vestra“ og ,,Austra“), var afmælisins minnzt með svipuðum hætti. II. I blöðunum frá þessum tíma er að öðru leyti ýmislegt, sem varðar hálfrar aldar afmæli verzl- unarfrelsisins. ,,Þjóðólfur“, undir ritstjórn Hannesar Þorsteinssonar, birtir langa grein og skilmerkilega eftir Þorleif H. Bjarnason um sextíu ára verzlunarbaráttu. Birtar eru ræður og kvæði, og kennir þar ýmissa grasa. Benedikt S. Þórarinsson taldi, að þrennt hefði „gert oss verzlunarfrelsislögin að gagni mest og bezt og eflt íslenzku verzlunarstéttina í land- inu“: stofnun Landsbankans 1885, fjárveitingar til samgangna eftir 1874 og fjölgun löggiltra kauptúna. En hann kvað öflugasta hlekkinn vanta: stórkaupmennina (Isafold, XXXI. árg., bls. 90). Heildsala þreifst þó ekki hér á landi, fyrr en ritsíminn var lagður og loftskeytasam- band komið á við útlönd. I „Ingólfi“, undir ritstjórn Bjarna Jónssonar frá Vogi, birtist grein um búsetu fas'takaup- manna hérlendis. Ha.fi Alþingi áður samið laga- frumvarp um það efni og líklegt sé, að það sam- þykki það enn, þar eð stjórnin sé nú orðin þjóð'- leg og innlend (II. árg., 58.—59. bls.). En „Þjóðviljinn“, undir ritstjórn Skúla Thor- oddsens, hreyfði merkilegri tillögu: „I raun og veru virðist oss, að vel ætti við, að tímamóta þessara væri eigi aðeins minnzt með mannfund- um og ræðuhöldum, en að reist væri síð'ar líkn- eski verzlunar- og siglingaguðsins í Reykjavík, til minningar um verzlunarfrelsið; en að líkind- um verður það þó að bíða 100 ára afmælisins, enda líklegt, að þá verði risin upp öflugri og framtaksmeiri kynslóð en nú er“ (XVIII. árg., bls. 50). Þórður Jónsson. FRJÁLS VERZLUN 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.