Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 25
Austurstrœti í Reykjaitik skömmu fyrir síðustu aldamót.
hugmyndirnar um frjálsa verzlun áttu fremur
erfitt uppdráttar lengi frameftir.
Allt um það eru tilraunirnar, sem gerðar voru
í nýju innréttingunum í Reykjavík upp úr 1750
mjög merkar og brautryðjandi.
I sambandi við þær var stofnað fyrsta ís-
lenzka hlutafélagið til verzlunar- og atvinnu-
rekstrar í Reykjavík. Félag þetta var stofnað á
Alþingi sumarið 1751 og stóðu að því margir
fyrirmenn þjóðarinnar, en í stjórn þess áttu sæti
Magnús Gíslason lögmaður, Skúli Magnússon
landfógeti, og sýslumennirnir Brynjólfur Sig-
urð'sson og Þorsteinn Magnússon. Félaginu var
ætlað víðtækt verksvið, en árlegir hluthafa-
fundir skyldu haldnir á Öxarárþingi. Skúli fó-
geti sagði að tilgangur þessa félags væri sá að
styrkja lieill og framfarir landsins og væri öllum
landsmönnum, háum og lágum, heimil þátttaka
í félaginu, en tekjuafgangi skyldi varið til nýrra.
framkvæmda og eflingar félaginu sjálfu.
Þessu félagi var fyrst og fremst ætlað að reka
iðnað, en átti einnig að vera verzlunarfélag að
því leyti, að því skyldi heimilt að sélja sjálft
afurðir sínar og flytja út, að minnsta kosti ef
ekki næðist samkomulag við verzlunarfélagið
um þessi mál, en það hafði einokun á verzlun-
inni.
Fyrirætlanir forystumanna þessara ára voru
annars mun umfangsmeiri. Auk þess sem reynt
skyldi að koma á verksmiðjurekstri til þess að
vinna úr ýmsum íslenzkum afurðum, skyldi gera
tilraunir til akuryrkju, skógræktar, skipasmíða
og ýmislegrar nýrrar vöruverkunar og loks
skyldi reyna að auka peningaverzlun. Peningar
voru þá mjög lítið' í umferð hér og flest verzlun
vöruskipti. Um þessar mundir komu einnig fram
tillögur um einskonar sparisjóðsstarfsemi í
Reykjavík, eða í Hóhninum.
Allar þær löngu og flóknu deilur, sem urðu
um innréttingarnar og um margvíslega um-
sýslu Skúla fógeta, þarf ekki að rekja hér.
Margt af tilraununum mistókst eða þær koðn-
uðu niður, ýmist fyrir harða. og óvægilega er-
lenda mótspyrnu, og liatur það, sem danskir
einokunarmenn lögðn á þessa íslenzku við'leitni.
en annars vegar stóðu þessar tilraunir höllum
FRJALS VERZLUN
49