Frjáls verslun - 01.04.1955, Side 30
Skólahítsið við Grundarstíg.
Dr. Jón Gíslason, skólastjóri:
Yerzlunarskóli
íslands
fimmfugur
Skólinn hefut' verið vagga og skjðl framtakssamri veraslunarstétt
Eitt sinn, er rætt var um málefni Verzlunar-
skólans á alþingi, komst merkur maðtir svo að
orði í þingræðu: „Það hefði átt að vera eitt hið
fyrsta verk vort, eftir að vér fengum fjárforræði,
að setja á stofn verzlunarskóla. Það mundi hafa
borið þúsundfaldan ávöxt“.
Vissulega er þetta sannmæli. An traustrar
þekkingar verður verzlun ekki rekin með góð-
um árangri. Mun þekkingarskortur landsmanna
í verzlunarmálum einatt hafa valdið stórtjóni
fyrstu áratugina, eftir að verzlunin var gefin
frjáls. Engum var það kunnar en verzlunar-
mönnum sjálfum, hvílíkt nauðsynjamál það var
að efla menntun stéttarinnar, enda er Verzlun-
arskólinn sprottinn upji af viðleitni þeirra í þessa
átt.
Verzlunarskóli Islands var, svo sem kunnugt
er, stofnaður árið 1905 og verður því fimmtugur
á þessu ári. Þessara merku tímamóta í sögu
skólans mun verð'a minnzt á hausti komanda,
m. a. með útgáfu minningarrits. Verður þar að
nokkru rakin saga skólans. Hér skal aðeins drep-
ið á örfá meginatriði.
Kaupmannafélagið og Verzlunarmannafélagið
í Reykjavík stóðu að stofnun skólans. Kusu þau
félög fyrstu stjórnarnefnd skólans. Skólastjóri
var ráðinn Ólafur G. Eyjólfsson, maður prýði-
lega menntaður bæði almennt og í verzlunar-
fræðum sérstaklega. Veitti hann skólanum for-
stöðu tíu fyrstu árin, sem hann starfaði. Þótt
við mikla fjárhagsörðugleika væri að etja, dafn-
aði skólinn furðanlega. Starfaði hann lengst af
í þremur deildum: undirbúningsdeild, miðdeild
og efstu deild.
Er Ólafur G. Eyjólfsson iét af skólastjórn ár-
ið 1915, var Jón Sivertsen ráðinn forstöðumaður
skólans. Gegndi hann því starfi til ársins 1931.
Aðsókn að skólanum fór stöðugt vaxandi, en
fjárhagurinn var jaínan mjög erfiður og húsa-
kynnin óhentug. — Tvennt má merkast telja í
sögu skólans á þessu tímabili: Fyrst það, er
Verzlunarráð íslands tók að sér rekstur skólans.
Var frá þeim málum að fullu gengið i júlí árið
1922. Skipaði Verzlunarráðið þá sérstaka skóla-
nefnd til að hafa á hendi málefni skólans. Hinn
merkisatburðurinn var sá, er stofnaður var 3.
bekkur árið 1926. Lengdist námið þá um eitt ár.
Var skólinn þannig þriggja ára skóli, auk undir-
búningsdeildar.
Árið 1931 lét Jón Sivertsen af stjórn skólans.
Urðu það ár mikil þáttaskil. Ráðizt var í að
kaupa húseignina. Grundarstíg 24, þar sem skól-
inn hefur starfað síðan. Hlutafélag var stofnað
til að annast þessi húsakaup. — Um leið og skól-
inn flutti í hin nýju húsakynni, tók Vilhjálmur
Þ. Gíslason við stjórn hans. Efldist skólinn nú
brátt að nemendafjölda og fjölbreytilegri mögu-
leikum til náms. Árið 1935 var skólanum breytt
úr þriggja. ára skóla í fjögurra ára skóla. Fram-
haldsdeild var starfrækt um tíma fyrir þá, er
lokið höfðu verzlunarprófi. Sum árin var og efnt
til ýmissa sérnámskeiða. Loks var merkilegum
áfanga náð með stofnun lærdómsdeildar við
skólann árið 1942. Tók hún til starfa haustið
54
FHJÁLS VERZLUN