Frjáls verslun - 01.04.1955, Side 33
króna styrkur árlega, og greiddu íslendingar 18
þúsund krónur af þessari upphæð, en Danir 40
þúsund.
Það verður of langt mál, að rekja hér við-
skiptin við Sameinaða gufuskipafélagið ó þess-
um árum, þangað til þeim lauk að fullu, er Eim-
skipafélag Islands var stofnað. En óánægjan
með siglingarnar var mikil og stöðug, og voru
ýmsar leiðir reyndar til þess að bæta úr þeim,
þ. á. m. var árið 1895 borið fram frumvarp á
Alþingi um að kaupa gufuskip, til þess að við
gætuin sjálfir annast siglingarnar. Hvernig sem
á því stóð, varð nið'urstaðan sú, að skip var
ekki keypt, heldur samþykkti Efri deild, að skip
skyldi leigt. Og þótt merkilegt megi heita, var
einmitt leitað til Sameinaða gufuskipafélagsins
um leigu á skipinu, og eitt af skipum þess, e.s.
„Vesta“ tekið á leigu, en landssjóður annaðist
reksturinn. Sá ríkisrekstur var með öllu mis-
heppnaður, og stóð ekki nema tvö ár, enda stór-
tap á öllu saman, hverju sem um var að kenna.
Enn var nú samið við' Sameinaða félagið um
siglingarnar, og nú var millilandaferðum fjölgað
í 18 ferðir á ári, og strandferðir hafnar með
tveim skipum, e.s. „Hólar“ og „Skálholt“, þó
aðeins yfir sumarmánuðina frá því í apríl og til
októberloka, Fékk félagið nú 95 þúsund króna
styrk til þessara ferða, 55 þús. kr. úr landssjóði
og auk þess 40 þús. kr. úr ríkissjóði Dana, og
hækkaði styrkur þessi síð'ar upp í 140 þúsund,
sem var geypifúlga á þeim árum.
Höfnin í Reykjav'k' 1897
Þannig gekk þetta fyrstu 20 árin eftir að verzl-
nuarfrelsið fékkst. Þegar Alþingi fékk löggjafar-
vald og fjárforræði árið 1874, varð þegar nokk-
ur breyting á. Nú gátu Islendingar sjálfir sam-
ið um siglingar sínar, og var jafnvel farið að
hugsa um að' eignast eigin skip. Það var oft
bæði dýrt og torsótt að fá Sameinaða guíu-
skipafélagið til þess að láta skip sín sigla hing-
að. Árið 1880 fékkst íélagið þó til þess að' láta
tvö af skipum sínum sigla hingað, og fóru þau
9 ferðir alls til landsins, þar af 5 ferðir kringum
land. Fyrir þetta var félaginu greiddur 58.000
Hollenzkt Islandsjar á 18. öld
FlíJALS VERZLUN
57