Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Page 47

Frjáls verslun - 01.04.1955, Page 47
Núverandi stjórn V. R. — F. v.: Jlannes Sigarðsson, Daníel Gíslason, Einar Elíasson, Gunnl. Briem, Pétur Sœmundsen, Guðjón Einarsson, lngvar N. Pálsson, Októ Þorgrímsson, Einar Ingimundarson, Gunnl. Þorbjömsson og Olajur 1. IJannesson (jramlcv.stj.) ræðu innan félagsins. Sú barátta hófst með skip- un fyrstu launakjaraneíndar V. R. 1937. Var lokunartími sölubúða aðalviðfangsefni þessarar fyrstu nefndar og fékkst allveruleg stytting á vinnutíma verzlunarfólks. Haustið 1939 voru kjaramál verzlunarmanna tekin fastari tökum. Upp frá því má segja að hagsmunamál verzlun- arfólks fari að verða eitt helzta viðfangsefni fé- lagsins. í marz 1940 var húseignin Vonarstræti 4 keypt og skrifstofa félagsins flutt þangað, en árið áður hafði verið ráðinn sérstakur skrifstofu- stjóri til að annast dagleg störf. Við' þessi húsa- kaup í hjarta bæjarins opnuðust möguleikar fyrir aukinni starfsemi, og um haustð sama ár var félagsheimilið opnað. Arið áður, í janúar 1939, hóf félagið útgáfu á sínu eigin málgagni, FRJÁLSRI VERZLUN, er hefur komið út óslitið síðan. Á árunum 1943—44 fékk félagið kr. 80.000.00 að gjöf til styrktar námsfólki, sem leggur stund á verzlunarfræði. Var gefandinn Tlior Jensen, og ber sjóðurinn nafn lians. Haustið 1945 gerðust allrnikil tíðindi í sögu félagsins, er stofnaðar voru innan vébanda þess þrjár launþegadeildir, er hafa skyldu með hönd- um málefni launþega, sér í lagi kjaramálin. I beinu áframhaldi af þeirri skipulagsbreyt- ing'u náðist merkasti áfanginn á þróunarbraut kjaramála verzlunar- og skrifstofufólks, er und- irritaður var heildarsamningur um lágmarks- kaup og kjör meðlima í V. R., þann 18. janúar 1946. Með þeim samningi var í fyrsta sinn við- urkenndur samningsréttur félagsins. Verður þessi dagur ávallt talinn einn hinna helztu merk- isdaga í sögu V. R. Guðjón Einarsson hefur ver- ið formað'ur félagsins síðan 1946. Sama ár er stofnað byggingarsamvinnufélag V. lt., og hefur félagið þegar reist nokkur hús. Á síðasta aðalfundi V. R., er haldinn var 28. febrúar s.h, var svo stigið síðasta lokasporið á þeirri þróunarbraut, sem félagið hefur stefnt að FRJÁLS VERZLUN 71

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.