Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 48

Frjáls verslun - 01.04.1955, Qupperneq 48
GarSar Oislason, jyrsti form. VerzlunarráSs íslands. síðasta áratuginn. Félagið var gert að hreinu launþegafélagi, og atvinnurekendur viku úr því. Fór sá aðskilnaður fram í fullri vinsemd. Við' það tækifæri voru Verzlunarskólanum færðar stórgjafir frá félaginu. Á þessum vegamótum í sögu félagsins er það orðið eitt stærsta launþegafélag landsins, og er félagatalan nú yfir 1400. Verzlunarmannafélags Tteykjavíkur bíða nú margvísleg verkefni, fyrst og fremst kjara- og hagsmunamál verzlunarfólks í Reykjavík, en fé- lagið má aldrei missa sjónar á sínu upphaflega markmiði, menningarmálunum. Þau eiga að vera eitt af rnegin hugðarefnum félagsins í fram- tíðinni. Verzlunarráð íslands Verzlunarráð Islands er stofnað 17. september 1917 á „fulltrúafundi verzlunarstéttarinnar“, er haldinn var hér í bæ. Tildraga að stofnun þess er að leita lengra aftur í tímann, ]jví að það er Kaupmannafélagið í Reykjavík, sem helzt kem- ur við sögu Verzlunarráðsins, en það félag var stofnað 1899. Voru flestir eða allir helztu kaun- menn bæjarins í félaginu. Beitti félagið sér fyrir framkvæmdum í ýmsum málum og hafði marg- vísleg áhrif. Innan vébanda félagsins var fyrst rætt um nauðsyn allsherjarfélagsskapar kaup- sýslumanna. Mun það hafa verið í ársbyrjun 1907, að stjórn félagsins sendi út boðsbréf til kaupmanna um land allt mn stofnun eins alls- herjar kaupmannafélags á íslandi. Ekki bar þessi viðleitni þann árangur, sem til var ætlazt, og félagið hélt áfram að vera reykvísk stofnun. Fleiri tilraunir voru gerðar til að ná til allra kaupsýslumanna landsins, og 1914 var nafni fé- lagsins breytt og það kallað Kaupmannaráð Is- lands. Stofnun Verzlunarráðsins er einskonar framhald af starfsemi Kaupmannaráðsins, og stofnunin undirbúin af hendi þess. Stofnfundur Verzlunarráðsins var svo haldinn 17. sept. 1917, eins og fyrr segir. Tilgangur þess var ákveðinn sá, að vernda og efla verzlun, iðnað og siglingar landsmanna, og settar reglur um störf þess í ein- stökum atriðum. Stofnendur Verzlunarráðs Is- lands voru 156 kaupsýslumenn og fyrirtæki. Garðar Gíslason stórkaupmaður var kosinn fyrsti formaður ráðsins. Núverandi fonnaður þess er Eggert Kristjánsson stórkaupmaðúr, og hefur hann verið endurkosinn í þá virðingar- stöðu árlega síðan 1949. Hefur hann átt sæti í stjórn ráðsins síðan 1935. Sem heildarsamtök kaupsýslumanna og fyrir- tækja hefur Verzlunarráðið haft mikil og marg- vísleg afskipti af ýmsum löggjafarmálum sem verzlunarstéttina vörðuðu, allt frá því að það var stofnað. Árið' 1923 tók Verzlunarráðið að sér starfrækslu og fjárhag Verzlunarskólans, af Kaupmannafélaginu og V. R. Verzlunarráðið hefur tilnefnt menn í samn- inganefndir um utanríkisviðskipti, og samninga- gerðir við erlendar þjóðir bornar undir það. Um allmörg ár hélt ráðið úti riti, er nefndist „Verzlunartíðindi“,. og nú gefur það út blaðið „Ný tiðindi“. Fyrir forgöngu ráðsins hafa verið haldin verzl- unarþing, þar sem tekin voru til meðferðar þau mál, sem á hverjum tíma hafa verið efs't á baugi meðal kaupsýslumanna. Mörkuðu þessi þing stefnuna, sem fara skyldi eftir. Einnig gekkst ráðið fyrir allsherjar fundi kaupsýslumanna og iðnrekenda árið' 1948, er vakti verðskuldaða at- hygli alþjóðar. Verzlunarráðið hefur frá upphafi haldið uppi skrifstofu í Reykjavík. Var fyrsti skrifstofustjóri þess Georg Olafsson, síðar bankastjóri, en Helgi Bergsson hagfræðingur hefur haft þetta starf með höndum síðan 1943. Hefur skrifstofan haft með höndum hinn mesta fjölda mála, sem verzlun- arstéttina vörðuðu og haft hafa hina mestu þýð- ingu. 72 FR.TÁLS VERZLUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.