Frjáls verslun - 01.01.1974, Blaðsíða 13
Félagsmál:
Tillögur stórkaupmanna um laga
hreytingar hjá Verzlunarráðinu
Félag íslenzkra stórkaup-
manna samþykkti nýlega á
stjórnarfundi tillögur til breyt-
inga á núverandi lögum Verzl-
unarráðs Islands. Lúta þær
einkanlega að ákvæðum um að-
ild að ráðinu svo og árgjöld.
í 3. gr. núgildandi laga um
Verzlunarráðið er skýrt hverj-
ir séu aðilar að því og sagt, að
ráðið sé samtök fyrirtækja,
einstaklinga og félagasamtaka
þeirra, sem reka viðskipti á
samkeppnisgrundvelli, svo og
verzlun, iðnað, bankastarfsemi,
verktakastarfsemi, tryggingar,
samgöngur, lögfræðistörf, bók-
halds- og tækniþjónustu, veit-
inga- og gistihús og aðra skylda
starfsemi.
AÐILAR
í 7. gr. er svo sagt, að aðilar
að Verzlunarráðinu geti orðið
þeir aðilar, sem um getur í 3.
gr.
Stórkaupmannafélagið legg-
ur til, að eftirtaldir aðilar geti
öðlazt inngöngu í Verzlunar-
ráðið:
I. Heildarsamtök innflytj-
enda, heildsala, kaupmanna og
önnur heildar- og sérgreinafé-
lög á sviði verzlunar, svo og
einstök fyrirtæki, sem eru utan
þessara samtaka, en hafa verzl-
un að aðalstarfi.
II. Heildarsamtök iðnaðar.
III. Önnur heildar- og sér-
greinafélög og fyrirtæki, sem
ekki eiga heima í samtökum I
og II eða telja sér ekki fært að
vera í þeim.
Þau aðildarfélög, sem ekki
eru í landssamtökum heildsala,
kaupmanna eða iðnrekenda eða
sérgreinafélögum, sbr. tölulið I
til III, við samþykkt þessara
laga, en ættu heima í einhverju
þeirra í samræmi við starfsemi
sína, skulu óska eftir aðild að
viðeigandi landssamtökum eða
sérgreinafélögum innan 6 mán-
aða frá samþykkt laga þessara.
Félagsmaður getur, ef fram-
kvæmdastjórn samþykkir,
gengið í Verzlunarráðið að því
er aðeins snertir tiltekið svið
atvinnurekstrar síns.
ÁRGJÖLD
Þá gerir stjórn Félags ísl.
stórkaupmanna það að tillögu
sinni, að um árgjöld til Verzl-
unarráðsins gildi eftirfarandi
ákvæði:
„Félagasamtök, sbr. 7. gr.,
skulu greiða ákveðið árgjald
pr. félaga í samtökunum. Ár-
gjald þetta skal vera föst
krónutala pr. meðlim og skal
stjórn Verzlunarráðsins ákveða
árgjald þetta í samráði við
stjórn aðildarfélaganna innan
mánaðar frá lokum aðalfundar
ráðsins. Árgjald annarra að-
ildarfyrirtækja að ráðinu, sbr.
7. gr., skulu ákveðin af stjórn-
inni eftir reglum, sem hún set-
ur. Hafi félagi eða félagasam-
tök ekki greitt árgjald sitt fyr-
ir árslok, er heimilt að má nafn
þeirra af félagaskrá.
Á félagsfundum og við
stjórnarkjör fá hver félaga-
samtök eitt atkvæði fyrir
hverjar 1000 kr., sem þau
greiða í félagsgjald. Þó getur
enginn aðili farið með meira en
1/4 hluta atkvæða, sbr. álögð
árgjöld. Árgjöldin falla í gjald-
daga fyrsta dag næsta mánaðar
eftir aðalfund.“
Reykjavíkurbók lceland Review
„Þetta er einkar falleg bók
og fengur að henni til kynn-
ingar Reykjavíkur úti í heimi,“
sagði borgarstjórinn, Birgir ís-
leifur Gunnarsson, þegar Gunn-
ar Hannesson afhenti honum
fyrsta eintakið af nýrri mynda-
bók, „REYKJAVÍK — A Pano-
rama in Four Seasons“.
Bók þessi er í útgáfu Ice-
land Review. Jökull Jakobsson
skrifar inngang um lífið i
Reykjavík fyrr og nú, en mynd-
irnar, sem eingöngu eru lit-
myndir, eru allar eftir Gunnar
Hannesson. Nær áratugur er
liðinn síðan fyrstu myndir
Gunnars birtust á prenti — og
þá í Iceland Review, sem síðan
hefur birt mikinn fjölda mynda
hans, og þær hafa jafnan vak-
ið athygli. Hvergi hefur Gunn-
ar tekið fleiri myndir en í
Reykjavík — og í þessari bók
birtist úrval þess fjölbreytta
safns, skipt niður í árstíðirnar
fjórar, eins og titillinn ber með
sér.
Það er viðburður í íslenzkri
bókaútgáfu, þegar gefin er út
bók með myndum eins ljós-
myndara — og einsdæmi, að
eingöngu sé um litmyndir að
ræða. Ekki hafa margar bæk-
ur af því tagi — eingöngu
helgaðar höfuðstaðnum — séð
dagsins ljós, og þessi nýja
Reykj avíkurbók er þar að auki
sérstæð að því leyti, að hér er
FV X 1974
13