Frjáls verslun - 01.01.1974, Blaðsíða 80
Starfsfólk á auglýsingastofu Kristínar Þorkelsdóttur.
saman. Þetta er víða gert er-
lendis svo sem í Danmörku og
Þýzkalandi og salan hefur
aukizt mikið eftir það.
— Eru auglýsingar í sérrit-
um rétt notaðar, og hvernig
eiga þær að vera?
— Auglýsingar í sérritum
líða fyrir það að vera gerðar
til almennrar notkunar. í sér-
riti er maður yfirleitt að tala
við fagfólk, þannig að stað-
reyndir nýtast betur, þegar
höfðað er til slíks lesendahóps,
heldur en til almenns lesenda.
Auglýsingar í sérritum þyrftu
að vera ítarlegri, en þá geta
þær verið of tyrfnar fyrir
hinn almenna lesanda.
— Er þörf á markaðsfræð-
ingum hérlendis að þínu áliti?
— Almennt sagt tel ég ekki
þörf á slíku. Hver þokkalega
greindur maður, sem hefur
unnið á einhverju sviði mark-
aðsins er yfirleitt með glögga
yfirsýn yfir það svið. Það er
þörf á markaðsfræðingum í
einstaka sérstæðum tilfellum,
en almennt ekki.
— Telurð'u að auglýsingar í
íslenzka sjónvarpinu hafi jafn
mikið auglýsingagildi og fyrst,
þegar byrjað var að sýna
þær?
— Nýjabrumið er farið af
auglýsingunum, en við vitum,
að auglýsingagildi sjónvarps-
ins er ákaflega mikið. Þegar
gerð er stór auglýsingaáætlun
fyrir fyrirtæki kemur ekki til
greina að sleppa auglýsingu í
sjónvarpi. Þær hafa sterkustu
áhrifin.
— Hver er munurinn á
stórri og litilli auglýsingaáætl-
un?
Stærð á auglýsingaáætlun
fer eftir markaðsaðstöðu vör-
unnar, eðli hennar og mörgum
öðrum þáttum. Það er ekkert
sérstakt annað en stærðin, sem
skilur á milli stórrar og lítill-
ar auglýsingaáætlun.
Verktakar - Bæjarfélög
• LOFTPRESSUR
• LOFTVERKFÆRI
• BORSTÁL
• FLEYGSTÁL
• SLÖNGUR
• tengi A. WENDEL h.f.
jafnan fyrirliggjandi. umboðs- og heildvebzlun,
SÖRLASKJÓLI 26, REYKJAVÍK. SÍMI 1 54 64.
80
FV 1 1974