Frjáls verslun - 01.01.1974, Blaðsíða 87
mí
Erna Freyja Oddsdóttir
Anna K. Kristinsdóttir
Berta Guðjónsdóttir
lýsingasöfnunar er að birta á
einum stað aðgengilegar upp-
lýsingar um íslenzk fyrirtseki,
starfsemi þeirra, stjórn og
stjórnendur, helztu starfsmenn
og aðra þá hluti, sem fyrir-
tækin hafa áhuga á að kynna.
Framkvæmastjóri fyrir ís-
lenzk fyrirtæki er Sigurður
Dagbjartsson.
íþróttablaðið hefur aukið
útbreiðslu sína um helming
síðan Frjálst framtak h.f. tók
við útgáfu þess. Með auknum
frístundum og þátttöku al-
mennings í íþróttum og heilsu-
rækt gegnir blaðið mikilvægu
hlutverki. Ritstjóri þess er
Sigurður Magnússon, út-
breiðslustjóri f.S.Í. en umsjón
með blaðinu hefur auk hans
Jón Birgir Pétursson.
Sjávarfréttir fjalla um út-
gerð og fiskiðnað ásamt hin-
um þýðingarmiklu þjónustu-
greinum sjávarútvegsins. Þetta
blað vakti verulega athygli
þegar í stað og áskriftarpönt-
unum hefur rignt yfir. Eftir-
tektarvert er hversu alþjóð
sýnir málefnum sjávarútvegs-
ins geysimi'kinn áhuga. Rit-
sjórar Sjávarfrétta eru Jóhann
Briem og Þórleifur Ólafsson.
Frjálst framtak h.f. hefur
aðsetur að Laugavegi 178, þar
sem áður var húsnæði dag-
blaðsins Vísis. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er Jóhann
Briem, sem sér um daglega
stjórn þess þar á meðal yfir-
umsjón með öllum útgáfum
þess. f stjórninni er lögð rík
áherzla á setningu markmiða
og áætlana um hvernig þeim
skuli náð. Framkvæmdaáætl-
anirnar eru gerðar í samráði
við starfsfólk, sem sér síðan
um að fylgja þeim og vinna
sjálfstætt að settu takmarki.
í stjórnunardeild starfa Þur-
íður Ingólfsdóttir, gjaldkeri,
Anna Kristín Kristinsdóttir,
sem hefur skrifstofuumsjón
með höndum og Þórunn Elín
Tómasdóttir, skrifstofustúlka.
Söludeildin hefur á að skipa
starfskröftum þeirra Geirþrúð-
ar Kristjánsdóttur, auglýsinga-
stjóra Frjálsrar verzlunar, Ingu
Ingvarsdóttur, útbreiðslustjóra
Frjálsrar verzlunar, Ernu
Freyju Oddsdóttur, auglýs-
ingastjóra Sjávarfrétta og
auglýsingastjóra íþróttablaðs-
ins, Önnu Agnarsdóttur.
Berta Guðjónsdóttir hefur
með höndum innheimtu fyrir
fyrirtækið.
Inga Ingvarsdóttir
Anna Agnarsdóttir
Þórunn E. Tómasdóttir
FV 1 1974
87