Frjáls verslun - 01.07.1976, Síða 90
AUGLYSING
G.S
■ varahlutir
NAUÐSYNLEGIR VARAHLUTIR Á
HAGSTÆÐU VERÐI
Verslunin G. S. varahlutir,
Ármúla 24, Reykjavík hefur
ávallt fyrirliggjandi flestalla
nauðsynlega varahluti í ev-
rópskar bifreiðar, en hins vegar
minna í japanskar og amerískar
bifreiðar. Varahlutirnir eru fá-
anlegir í fólksbíla, stationbíla,
jeppa og svokallaða pick-up
bíla.
Verslunin G. S. varahlutir
var stofnað fyrir tæpum fimm
árum síðan, og sagði fram-
kvæmdastjórinn Guðmundur
M. Sigurðsson, að eftirspurnin
væri bundin við árstíma. Á
sumrin er t. d. mikið spurt um
hluti fyrir stýrisbúnað, demp-
ara og pústkerfi. Á haustin er
aftur á móti meira spurst fyrir
um hluti fyrir rafkerfið og
einnig mikið selt af rafgeymum,
vatnslásum og vatnsdælum.
Þessa árstíma þarf sérstak-
lega að undirbúa, til þess að
hafa ávallt varahluti fyrirliggj-
andi.
G. S. varahlutir 'hafa umboð
fyrir erlend fyrirtæki, sem hafa
sérhæft sig í framleiðslu bíla-
og varahluta, og má þar fyrst
nefna Sila, sem framleiðir
bremsuklossa og kostar sett af
þeim frá kr. 1250, og kúplings-
diska og kosta þeir frá kr. 2480.
Fyrirtækið Facet framleiðir
kveikjuhluti í allar gerðir bif-
reiða og eru bæði fyrirtækin
itölsk.
Einnig selja G. S. varahlutir
stýrisbúnað frá v-þýska fyrir-
tækinu Ehrenreich. í stýrisút-
búniaði eru innifaldir stýris-
endar, stýrisstangir og spindil-
kúlur. Verð á þessum hlutum
er kr. 27.000, en í flestum til-
fellum þarf aðeins að skipta um
hluta af stýrisútbúnaði, ef um
bilun er að ræða.
Þá eru G. S. varahlutir um-
boðsaðili fyrir v-þýska fyrir-
tækið Leistitz, sem framleiðir
hljóðkúta í flestalla ev-
rópska bíla og kostar hljóðkút-
ur með tilheyrandi útbúnaði
allt frá kr. 6.500. Einnig hefur
verslunin nýverið hafið inn-
flutning á Gabriel höggdeyfum
frá U.S.A. og verð á þeim
er frá kr. 2.400.
G. S. varahlutir geta ávallt
sinnt sivaxandi eftirspurn á
varahlutum í allar gerðir ev-
rópskra bifreiða.
90
FV 7 1976