Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 9
Landkynningarnefnd,
sem starfar á vegum ný-
skipaðs ferðamálaráðs
ríkisins, hefur gert ýms-
ar tillögur um skipan
landkynningarmála okk-
ar. Meðal annars gerir
ncfndin ráð fyrir, að
landkynningarskrifstofa
verði innan tíðar stofnuð
í Evrópu undir stjórn
ferðamálaráðs en sem
kunnugt er taka íslend-
ingar þátt í landkynning-
arsamstarfi Norðurland-
anna vestan hafs og starf-
ar einn íslendingur á nor-
rænu fcrðaskrifstofunni í
New York. Talið er lík-
lcgt að væntanleg Evr-
ópuskrifstofa verði stað-
sett á Norðurlöndum.
Margir Framsóknar-
menn leyna ekki von-
brigðum sínum með rit-
stjóm Tímans um þessar
mundir. Þeir segja, að út-
breiðsla blaðsins hafi
aldrei verið jafnlítil og
nú í hlutfalli við upplag
annarra blaða. Þessir
sömu menn eru óánægðir
með að flokksblaðið skuli
ekki berjast af meiri
hörku gegn Alþýðu-
flokknum og forystu-
mönnum hans, sem skipu-
lega séu að reyna að eyði-
leggja Framsóknarflokk-
inn með margvíslegum
uppljóstrunum.
Umtalsverð stækkun á
hótelrými er fyrirsjáan-
leg í höfuðhorginni á
næstunni. Hótel Saga
hcfur áformað að hyggja
viðhótarhúsnæði á lóð
sinni og innan skamms
verða innréttuð hótelher-
bcrgi á 4. hæð hússins,
þar sem Fluglciðir hafa
haft skrifstofur sínar.
Flugleiðir hafa ennfrem-
ur í hyggj'u að byggja við
Hótel Esju álíka mikið
gistirými og þar er nú
fyrir hendi. Líklegt er
talið að þeim fram-
kvæmdum verði hraðað
og lokið áður en Hótel
Saga hefur reist sína við-
byggingu.
Því hefur verið fleygt,
að Karl Schtitz, þýzki
rannsóknarlögreglumað-
urinn, sem hér hefur
dvalizt undanfarið, ætli
að krefja Morgunblaðið
skaðabóta vegna skop-
myndar eftir Sigmund,
sem birtist í blaðinu ekki
alls fyrir löngu. Þar var
lögreglumaðurinn sýndur
í einkennisbúningi, sem
var heldri manna klæðn-
aður í Þýzkalandi á dög-
um þriðja ríkisins. Pétur
Eggerz, fyrrum sendi-
herra, hefur verið að-
stoðarmaður Schutz og
túlkur. Sem kunnugt er
hefur Pétur átt í dálitlum
útistöðum við starfsbræð-
ur sína í utanríkisþjón-
ustunni og þykir þeim
Pétur kannski betur
geymdur í rannsóknar-
lögreglunni en í dipló-
matíinu. Alla vega er
hann í þeirra hópi ekki
kallaður annað en ,,Co-
lumbo“ þessa dagana.
Annars er það helzt að
frétta úr uanríkisþiónr
ustunni að fyrirhugaðar
munu vcra breytingar á
skipan starfsmanna í
sendiráðinu í Osl.ó vegna
aukins samstarfs tslands
og Noregs á hinum ýmsu
sviðum og til þess að öðl-
ast betri yfirsýn yfir það.
Frá New York bcrast
þær fregnir ennfreinur
að Ingvi Ingvarsson,
sendiherra, hafi óskað
eftir að vera fluttur á
milli sendiráða eftir að
allsherjarþingi Samein-
'uðu þjóðanna lýkur í
vetur.
Unnið er af kappi að
athugunum í sambandi
við væntanlegan rekstur
ylræktarvers á íslandi í
samvininu við Hollend-
inga. Má segja, að hug-
myndin um samstarf
þetta hafi fallið í mjög
góðan jarðveg og ekkert
líklegra en að upp úr
honum spretti blómlauk-
ar fyrir hollenzkan mark-
að. Kunnugir telja að um
mikla uppbyggingu á
þessu sviði geti orðið að
ræða í framtíðinni og sé
sú stærð ylræktarvers,
sem nú er talað um, að-
eins byrjunin. Einn af
forystumönnum Hollend-
inga í þessu máli er nefni-
lega framleiðandi gróður-
húsa, sem líklega verða
notuð fyrir þessa ræktun
og hann hefur því ekki
síður áhuga á að selja
ræktunarstöðvar en að
kaupa afurðir.
Þá er sú saga sögð og
gengur fjöll'unum hærra í
höfuðborginni að kunnur
Ieigubílstjóri og fjármála-
maður, sem kenndur er
við cina litröndina í regn-
boganum, liafi sclt 4
milljóna króna hlutabréf
í Samvinnubankanum
fyrir skömmu ,,á pari“.
FV 8 1976
9