Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 65
Fyrir forstöðumenn fyrirtækja og stofnana:
Fáein minnisatriði um
ræðumennsku
Leiðbeiningar bandarískra sérfræðinga um framkomu
á fundum
Næstum daglega skaða fjölmargir stjómendur álit sitt með illa undirbúnum og fluttum ræðum
eða ávörpum. Bregðið upp fyrir ykkur þessari mynd: Áheyrendur klappa kurteislega eftir ræð-
ima. Svo er byrjað að hvíslast á: „Þetta er nú með því lélegra, sem ég hef heyrt. Til hvers var
hann eiginlega að koma á fundinn?“
Láttu þetta ekki koma f jtít þig.
Ef þú ferð í höfuðatriðum eftir þeim leiðbein-
ingum, sem fylgja hér á eftir, tekst næsta ræða
þín vel, hún verður áhugaverð og aðstandendur
fundarins munu ekki sjá eftir því að hafa boðið
þér.
f Lestu ekki ræðuna af handriti
Ekkert er jafnleiðinlegt og að horfa á mann í
áhrifastöðu lesa upp fyrirfram saminn texta.
Gferðu drög að uppbyggin-gu ræðunnar og settu
minnispunkta á blað en talaðu frá eigin brjósti
og í eðlilegum samræðustil. Hafðu beint sam-
band við áheyrendur með augnatilliti og gættu
þess að horfa yfir allan hópinn en ekki aðeins
hluta hans,
Ef þú þarft að skila inn tilbúinni ræðu til að
láta fjölrita og dreifa skaltu fyrir alla muni
gera það en notaðu ekki það handrit við flutn-
ing ræðunnar á fundinum. Treystu á minnis-
punktana.
# Láttu formálann eiga sig
Meðan verið er að flytja formálsorðin beinir
áhorfendahópurinn augum að þér og sýnist veita
máli þínu eftirtekt en því miður er hætt við að
þeir láti hugann reika og ímyndi sér eitthvað
meira spennandi. Þú átt að grípa athygli þeirra
á stundinni, á meðan þeir horfa með áhuga á
þig. Reyndu þetta með spurningum:
— Hafið þið áhuga á að gera starfsemi fyrir-
tækisins hagkvæmari?
— Viljið þið hrista af ykkur slenið og ná
betri áramgri?
— Viljið þið auka söluna?
— Hvernig glímið þið við vandamál vegna
verðbólgunnar?
Þetta kann að hafa vakið athygli þeirra.
§ Byrjaðu á kjarna ræðunnar
Hvernig ákvarðarðu, hver sé þýðingarmesti
hluti ræðunnar fyrir áheyrendur? Mundu að
fyrstu viðbrögð hvers einstaklings við nýjum
aðstæðum felast í spurningunni: „Hvernig
snertir þetta mig?“ Jafnvel þeir ósérhlífnustu
bregðast þannig við. Þetta er einn hluti af sjálfs-
bj argarviðleitninni. Notaðu þér þennan eðlisþátt
með því að benda á fáein dæmi um ávinning
framarlega í ræðunni. Gerðu dæmin svo skýr og
skyld áheyrendum að þeir vilji meira. Nefndu
þau ekki öll á einu bretti heldur dreifðu þeim á
ræðuna.
I þessu sambandi er vert að minnast á ræðu,
sem blaðaútgefandi í Evrópu flutti á ráðstefnu í
Sviss. Ræðan var tæknilega séð prýðileg. En
hún höfðaði ekki til hópsins og fólkið fann ekki
hvernig efnisatriðin snertu það. Hrapalleg mis-
tök.
• Geröu ávinninginn sláandi
Ávinningurinn er svo mikilsverður, að þú
skalt tryggja að hann sé málaður sterkum litum.
Fáein dæmi:
FV 8 1976
63