Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 57
Landsbankinn, Ólafsvík
Afgreiðsla útgerðar-
lána óðum að fiytjast
til bankaútibúa
Rúnar Marvinsson, hótelstjóri.
— Þetta er fyrsta sumari'ð
sem hér er starfrækt hótel. Það
eru útgerðarmenn og fiskverlt-
endur sem eiga húsið og hefur
það verið starfrækt sem verbúð
tvo síðustu vetur, sagði Rúnar
Marvinsson, hótelstjóri Sjóbúða
í Ólafsvík, er blaðamaður FV
ræddi við hann.
— Miðað við að þetta er
fyrsta árið hefur reksturinn á
hótelinu gengið sæmilega. Fólk
hér er ekki almennilega búið
að átta sig á því hvaða þjón-
ustu það getur fengið hér á
staðnum, eins og smurt brauð
og kalt borð til veisluhalda. Það
hefur þurft að fá slíkt sent frá
Borgarnesi og Reykjavík.
— Það virðist vera samdrátt-
ur í ferðamálum hér á Nesinu,
alla vega í sumar, enda veðrið
afleitt. Við erum búnir að kosta
miklu í að auglýsa staðinn svo
að ég er bjartsýnn á að næsta
sumar verði gott,
— Reynsla okkar af vertíðar-
fólki hefur verið góð og höfum
við alveg sloppið við allar
skemmdir. Við höfum verið
heppnir með menn, en það má
alltaf búast við að eitthvað fari
fyrir 70 sjómönnum og hefur
okkur verið legið á hálsi fyrir
að vera strangir. Það er hins
vegar stjórn hússins sem setur
okkur ákveðnar reglur, sem við
verðum að fara eftir. Annars
var vertíðin í vetur léleg og
fátt um aðkomufólk. Það helst
allt í hendur, lítill fiskur, fátt
fólk.
I apríllok var opnað útihú
Landsbankans í Ólafsvík og á
Hellissandi. Af því tilefni liitti
blaðamaður FV Örn Arnljóts-
son, en hann veitir báðum úti-
búunum forstöðu.
— Viðskiptasvæði þessara
útibúa er Snæfellsnes, sagði
Örn, og verður að segja að snæ-
fellingar séu orðnir vel settir
hvað bankaþjónustu við kem-
ur, þar sem fleiri bankar eru
annars staðar á Nesinu. Hér í
Ólafsvík er og gamall og gró-
inn sparisjóður, en við yfirtók-
um sparisjóðinn á Hellissandi
með öllum. eignum og skuldum.
Sá sparisjóður stóð mjög vel,
en þeir á Hellissandi kusu að
fá banka. Þótt sparisjóðir séu
góðir og gildir þá hafa þeir
ekki eins víðtæka þjónustu og
bankar, svo sem rekstrarlán til
atvinnuveganna, erlend gjald-
eyrisviðskipti og innheimtui
svo að dæmi séu nefnd.
Við erum hér til að veita
þjónustu, ekki síst atvinnu-
rekstri. Með tilveru okkar hér
gerum við útgerð og þeim at-
vinnuvegum, sem snúast í
kringum hana, auðveldara fyr-
ir frá því sem áður var þvi
öll útgerðarlán varð að sækja
suður til Reykjavíkur, en af-
greiðsla þeirra er nú óðum að
flytjast hingað. Þannig verður
allt fljótvirkara fyrir menn því
öllum veðsetningum, og því sem
slíkum lánum fylgir, verður
hægt að ganga frá hér í fram-
tíðinni.
Annars er ekki hægt "?ð
segja mikið um þetta ennþá þar
sem við erum svo nýbyrjuð og
ég hef ekki viðmiðun í gegnum
árin. Viðskiptin hafa gengið
mjög vel og fara vaxandi. Það
er mikil lánaeftirspurn, sem er
eðlilegt, þegar vertíðin bregst
eins og skeði í vetur og allir
eru háðir sjávarútveginum. Ég
kann mjög vel við mig hér og
er bjartsýnn á framtíðina því
Ólafsvík og Hellissandur eru
uppgangsstaðir.
Starfsfólk Landsbankans í Ólafsvík. Örn útibússtjóri er annar frá
hægri.
FV 8 1976
55