Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 52
Soffanías Cecilsson
Byrjaði með síldarverkun en stundar
nú saltfiskverkun og rækjuvinnslu
„Tími til rækjuveiða alltaf að styttast vegna þröngsýni stjórnvalda"
— Ég keypti þetta upphaflega 1965 af hlutafélagi, sem lenti í greiðsluerfiðleikum. Ég byrjaði á
síldarverkun með hálfum hug, því þá sögðu forráðamenn Síldarútvegsnefndar að oft liefði verið
erfitt að salta síld, en aldrei eins og þá. Útkoman út úr söltuninni var þannig að ég fór að trúa því
að hægt væri að gera fleiri ómögulega hluti í fiskverkun, sagði Soffanías Cecilsson fiskverkandi
í Grundarfirði.
Soffanías Cecilsson t.h. í fiskverkunarhúsinu ásamt Guðbjarti
bróður sínum, sem með honutn starfar.
Síðan hefur Soffanías verið
að stækka hjá sér fyrirtækíð
smám saman og síðastliðin þrjú
ár hefur hann byggt frystiklefa,
stækkað fiskverkunarhúsnæðið
og rýmkað alla aðstöðu fvrir
starfsfólkið.
— Höfuðgreinin hefur verið
saltfiskurinn, en rækjuvinnslan
leiddi til frystihúsreksturs. Það
sem háð hefur rækjuveiðunum
er að tíminn er alltaf að stytt-
ast vegna þröngsýni stjórnvalda
sem hafa elt hleypidóma manna
er ekki þekkja veiðarnar. Tíma-
bilið í ár er algjörlega óraun-
hæft til samanburðar, þar sem
við fengum ekki leyfið fyrr en
27. maí. Þá eru tveir bestu mán-
uðirnir liðnir, og þar af leið-
andi færri bátar.
MINNI TOGHRAÐI ÞÁTTUR
í FRIÐUNARAÐGERÐUM?
— f endaðan júlí var rækju-
veiðin orðin 120 tonn og sá
afli að mestu kominn af tveim
bátum. Áður voru allt upp i 6
bátar og þá var aflinn þegar
best var um 400 tonn, sem ég
tók á móti. Aðalveiðisvæðið er
í klukkutíma siglingu frá
Grundarfirði, en í vor fundust
gjöful mið 10-20 sjómílur út af
Jöklinum á 160-180 faðma dýpi
og veiðin verið mest þar í sum-
ar. Þrátt fyrir þetta kom leyfið
svona seint, því að óeðlilega
mikið magn af smáýsu gekk á
nærliggjandi svæði við gömlu
miðin og þeir voru hræddir um
að við færum á þau. Það sem
helst hefur verið fundið rækju-
trollinu til foráttu er hversu
smáriðið það er. En staðreynd-
in er sú að í rækjutrollið kem-
ur aðeins stór fiskur og við
höfum sannanir fyrir því að
það liggur í toghraðanum.
Rækjutroll er dregið mjög hægt
þannig að smáfiskurinn forðar
sér en sá stóri er það latur að
hreyfa sig að hann lendir í. A
fiskitrolli hins vegar er tog-
hraðinn það miklu meiri að
smáfiskurinn nær ekki að forða
sér. Það er því spurning í sam-
bandi við friðunaraðgerðir
hvort ekki eigi að minnka tog-
hraðann hjá bátunum.
VERTÍÐIN VAR BETRI
EN BÚIST VAR VIÐ
— Vertíðin í vetur var betri
en við áttum von á. Við vorum
viðbúnir því að mæta minm
afla í ört minnkandi aflabrögð-
um. Frá áramótum og fram til
31. júlí er búið að taka á móti
2100 tonnum af slægðu og
óslægðu og einnig er rækjan
talin með. Við söltum allt árið
og eru nú komin um 600 tonn
af stöðnum fiski, en lítið af
skreið.
f haust er ég að hugsa um
að hefja skelvinnslu, því að
dauft er yfir öðrum veiðum hér
á þeim tíma og atvinnumálin
þannig að skelin er vænlegust.
Að lokum sagði Soffanías að
hann hefði byrjaðmjög snemma
í úgerð en aldrei kynnst hug-
takinu taprekstur á útgerð. Það
er svo einkennilegt hér í
Grundarfirði, sagði hann, að héi
þrífast ekki hlutafélög eða
samvinnurekstur eins og svo
víða annars staðar. Það virðist.
vera að einstaklingsframtakið
sé það sem gildir hér.
50
FV 8 1976