Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 102
Frá
riisijórn
IVfjólkursölumálin
Nú er unnið aö merkum þáttaskilum í
mjólkursölumálum höfuöborgarinnar, þar
sem almennar matvöruverzlanir munu í
auknum mæli bjóöa viðskiptavinum sínum
mjólk og mjólkurafurðir eins og aðrar
venjulegar neyzluvörur, sem þeir þurfa aö
afla sér. Hér er um sjálfsagða þjónustu aö
ræöa og ætti í sjálfu sér ekki að telja hana
til neinna meiriháttar nýjunga á okkar tím-
um. En hún verður það samt vegna þess að
samtök framleiðenda landbúnaðarafurða í
þessu landi hafa oft sýnt af sér forneskju-
lega einokunarhneigö og ekki viljað vera í
takt viö tímann hvaö fullkomnari og lipr-
ari verzlunarháttum viðkemur.
Einokunin hefur einna gleggst komiö
fram í viðskiptum einkaverzlunarinnar úti
á landsbyggðinni viö mjólkursamlög og
annan félagsskap framleiðenda. ÞaÖ hefur
verið tiltölulega hljótt um mörg þessi til-
felli en önnur hafa komizt í hámæli. Vegna
tengsla kaupfélagsverzlunarinnar og mjólk-
urstöðva hafa einkaverzlanirnar verið sett-
ar í mjólkursölubann og því miskunnar-
laust framfylgt. Þetta hefur fyrst og fremst
átt aö tryggja hagsmuni kaupfélaganna
með því aö synja keppinautum um dagleg-
ar neyzluvönu- til endursölu, vörur, sem
sjálfkrafa leiöa til annarra viöskipta í þeim
verzlunum, er hafa þær á boðstólum.
Bændur hafa sem framleiðendur og hags-
munaaöilar í slíkum deilum samþykkt of-
ríkiö með þögn sinni. Þeir hafa greinilega
taliö málum sinum svo vel borgið, að fleiri
mjólkursölustaöir og betri þjónusta viö
neytendur væri ekki þeirra mál. Þarna er
um mikinn misskilning að ræöa, sem ef til
vill á rætur aö rekja til þeirrar miklu opin-
beru forsjár og einstefnu í sölumáliun land-
búnaðarins, er forystumenn bændasamtak-
anna hafa lagt allt kapp á.
Hin nýju lög um skipan mjólkursölumál-
anna gera ráö fyrir aö mjólkursamsalan í
Reykjavík geti rekið sínar smásöluverzlanir
meö mjólkurvörur áfram eftir því sem á-
stæða kann aö þykja til. Hlutverk hennar
veröur þó fyrst og fremst aö annast heild-
sölu til matvöruverzlana meö nauösynlegan
aöbúnað fyrir mjólkurvörur. Þaö er greini-
lega hagkvæmt fyrir heildina, að verzlunar-
aöstaðan, eins fullkomin og hún er orðin
víða, geti þannig nýtzt til hins ítrasta.
Hitt er svo rétt, sem bent hefur veriö á,
að ekki er víst að öllum neytendum í höfuö-
borginni verði tryggð jafngóö aöstaða og
áður til mjólkuröflunar, ef verzlanir samsöl-
unnar loka undantekningarlaust og mat-
vöruverzlanir sjá sér ekki kleift aö hefja
mjólkursölu. Þaö hlýtur því aö vera kapps-
mál samsölunnar, dreifingaraðila framleið-
endanna, að gera neytendum sem allra auð-
veldast að kaupa mjólk. Þess vegna á sam-
salan að vera opin fyrir því aö nota rétt sinn
til smásöluverzlunar.
Iðnkynning
Hafin er margháttuð kynning á íslenzk-
um iönaöi og iönfyrirtækjum, sem Félag
ísl. iönrekenda hefur haft forgöngu um aö
hrinda af staö. Þetta er í senn merkilegt og
nauðsynlegt framtak fyrir þjóðarhéildina,
því að fátt er brýnna en að efla innlendan
framleiðsluiðnaö til að búa að á komandi
árum. Þetta hefur mörgum því miður yfir-
sézt illilega, bæöi ráöandi mönnum í
þjóðfélaginu og íslenzkum almenningi
sem með innkaupavenjum sínum getur lagt
þung lóð á vogarskálina fyrir íslenzkan iön-
að.
Ef til vill má líka kenna því um aö ís-
lenzkir framleiðendur hafi ekki lagt nógu
mikla rækt við að kynna vörur sínar og
hversu samkeppnishæfar þær eru í saman-
buröi viö margt annað, sem hér finnst á
markaðnum. Vonandi markar iönkynning,
sem nú stendur yfir upphaf að meiri ár-
vekni forstöðumanna iðnaöarins í þessum
málum þannig að þeir leggi í framtíðinni
áherzlu á jafnt og stööugt samband við
neytendurna. Hins vegar er fagnaðarefni
hve vel hefur verið aö undirbúningi þessar-
ar umfangsmiklu iönkynningar staðið og á
hún eflaust eftir aö vekja forvitni og skila
aðstandendum sínum góöum ávinningi eins
og til er ætlazt.
98
FV 8 1976
J