Frjáls verslun - 01.08.1976, Blaðsíða 17
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins
Verksamningar að upphæð
1600 milljónir króna gerðir í ár
Helztu samningarnir um byggingu heilsugæzlustööva
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins var komið á fót,
þegar eftir gildistöku laga um skipan opinberra framkvæmda, er
ADþingi staðfesti árið 1970. Framkvæmdadeildin fer með yfir-
stjórn verklegra framkvæmda og hefur auk þess frumkvæði um
stöðl'un mannvirkja. Innkaupastofnun ríkisins annast útboð
verka, en framkvæmdadeildin, sem er sjálfstæð stofnun, undirbýr
samningsgerð við verktaka og annast eftirlit með framkvæmdum.
Forstöðumaður framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins
er Skúli Guðmundsson, verkfræðingur, og við hann ræddi F.V.
um helstu verksamninga á þessu ári.
Alls hafa verið gerðir um 25
verksamningar það sem af er
árinu að upphæð alls 800 millj-
ónir króna. Ógerðir samningar
og væntanlegir samningar eftir
ný útboð, alls 10—-15 samning-
ar, hljóða einnig upp á um 800
milljónir króna. Sagði Skúli, að
reyindar hefði sumt af þessum
væntanlegu verksamningum
verið boðið út, en annað er óút-
boðið.
HEILSUGÆSLUSTÖÐVAR
í BYGGINGU VÍÐA UM
LAND
Helstu verksamningar gerð-
ir á þessu ári eru um byggingu
7 heilsugæslustöðva, reyndar
var hluti samninganna gerður
á síðasta ári, og hljóðar þessi
verksamningur upp á 169 Mkr.
Þessar heilsugæslustöðvar eru
á Kirkjubæjarklaustri og Vík í
Mýrdal, Búðardal, Bolungar-
vík, Dalvík, Vopnafirði, sem
eiga að verða fokheldar í ár og
á Höfn í Hornafirði er heilsu-
gæslustöð lengra komin.
Við sjúkrahúsið á Akureyri
er verið að steypa upp viðbygg-
ingu, sem í verða m.a. skurð-
stofur og röntgendeild. Verk-
samningurinn um þessa fram-
kvæmd er að upphæð 142 Mkr.
og sagði Skúli að óvíst væri,
hvenær framkvæmdum lyki.
Hins vegar hefur þegar verið
tekinn notkun hluti af annarri
viðbyggingu við sjúkrahúsið á
Akureyri og eru þar m.a.
sjúkrastofur fyrir barnadeild.
Skúli Guðmundsson.
Þá er einnig verið að byggja
við nokkur sjúkrahús á land-
inu og verður þar m.a. aðstaða
fyrir heilsugæslustöðvar ásamt
annarri aðstöðu.
NÝ SJÚKRAHÚS OG
VIÐBYGGINGAR
Við sjúkrahúsið í Keflavík
er verið að byrja á nýrri við-
byggingu og var gerður verk-
samningur um uppsteypt hús
að heildarupphæð 52 Mkr. Á
ísafirði er verið að hefja bygg-
ingu nýs sjúkrahúss og heilsu-
gæslustöðvar og er það lang-
stærsti verksamningurinn fyrir
uppsteypt hús að upphæð kr.
302 Mkr.
Verið er að byggja við
sjúkrahúsið í Neskaupstað. Sá
hluti er þegar fokheldur og
verður unnið áfram að innrétt-
ingagerð, sem kosta mun 61
Mkr.
Á Patreksfirði er nú að hefj-
ast mikið verk, en það er við-
bygging við sjúkrahúsið þar.
Verksamningurinn er að heild-
arupphæð 147 Mkr. við þessar
framkvæmdir. Loks hafa verið
gerðir tveir samningar að upp-
hæð 89 Mkr., sem er hluti
verks, um byggingu nýs sjúkra-
húss á Selfossi.
INNRÉTTINGAR í SKÓLA-
HÚSNÆÐI
Ýmsir aðrir verksamningar
hafa verið gerðir, að sögn
Skúla m.a. verksamningur um
innréttingu húsnæðis fyrir
Tækniskólann að Höfðabakka
9 í Reykjavík. Er þetta mjög
stórt húsnæði. Var gerður
leigusamningur til 10 ára með
framlengingarrétti. Verður
meginhluti þessa skólahúsnæð-
is tekinn í notkun nú í haust
en hluti hússins var notaður sl.
vetur.
Einnig var gerður verksamn-
ingur um innréttingu skrif-
stofubyggingar Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðarins
að Keldnaholti og hefur við-
byggingin þegar verið tekin í
notkun. Verksamningarnir við
Tækniskólann og nýbyggingar
Rannsóknarstofnunar bygging-
ariðnaðarins eru að upphæð 34
og 21 Mkr.
Við Héraðsskólann á Reykj-
um er unnið að innréttingum í
nýju kennsluhúsi fyrir upphæð
50 Mkr. Þetta húsnæði verður
tekið í notkun í haust og eru í
því m.a. skólastofur og bóka-
safn.
Þá er verið að byggja skrif-
stofuhúsnæði fyrir ríkissofn-
anir ofan á Grensásveg 9 í
Reykjavík og var þar gerðir
verksamningar uppp á 91 Mkr.
fokhelt húsnæði. Verður bygg-
ingin fokheld á næsta ári.
FV 8 1976
17