Frjáls verslun - 01.08.1976, Qupperneq 53
Emil Magnússon, kaupmaður:
„Aðstaða okkar í atvinnu-
rekstrinum í dreifbýiinu hefur
mikið batnað vegna þfónustu
bankaútibúanna64
„Þurfum í síminnkandi mæli að leita til Reykjavíkur til
að fá nauðsynlega fyrirgreiðslu44
— Það eru 24 ár síðan ég kom til Grundarfjarðar og réðist ég fyrst til Sigurðar Ágústssonar hf. sem
verzlunarstjóri. Scinna stofnaði ég Verzfunarfélagið Grund ásamt tveim öðrum og keyptum við
verzlun og fiskverkun af Sigurði. Eg hef alla tíð veitt verzluninni forstöðu, en við skiptum fé-
laginu upp og ég tók við verzluninni og hef rekið hana síðan ásamt minni fjölskyldu, sagði Emil
Magnússon kaupmaður, er blaðamaður FV heimsótti hann í nýtízkulegri verzluninni í Grund-
arfirði fyrir skömmu, til að afla frétta um verzlunarmálin.
— Verzlunin var upphaflega
í gamla húsnæðinu, þar sem
verzlun Sigurðar var, en 1970
flutti ég í þetta nýja húsnæði
sem ég byggði sjálfur. Til gam-
ans má segja, að á þessum 21
árum hafa verið 9 kaupfélags-
stjórar hér. Annars hafa sam-
skiptin milli þessara tveggja
verzlana hér verið góð. Umt'ang
beggja hefur verið áþekkt. Báð-
ar eru sláturleyfishafar og fá
álíka mikið af afurðum.
— Mér hefur þótt gaman af
að reka mitt fyrirtæki í þessu
byggðarlagi og átt miklu láni
að fagna 1 viðskiptum. Vel-
gengni mína vil ég þakka ötulli
aðstoð eiginkonu minnar og
dætra, en það er mikil vinna,
sem við höfum lagt í verzlun-
ina. Auknar samgöngur hafa
gert það að verkum að við höf-
um lagt áherzlu á að hafa einn-
ig á boðstólum það nýjasfa í
snyrtivöru og fatnaði.
NÁIN KYNNI AF
VIÐSKIPTAVINUM
— Það er skoðun mín að
kaupmaðurinn á horninu eins
og það er oft kallað megi ekki
hverfa fyrir stórmörkuðunum,
svo mikilvægur partur af mann-
lífinu er hann á hverjum stað.
Það eru fáir í þjóðfélaginu í
eins nánu sambandi við fólkið
og kaupmaðurinn, sem stendur
Emil Magnússon kaupmaður í Grundarfirði. Hann hóf verzlunar-
störf hjá Sigurði Ágússsyni, sem Emil segir hafa reynzt sér hinn
sanni vinur og lciðbeinandi. Nú rekur Emil eigin verzlun í ný-
lcgu eigin húsnæði.
í verzlun sinni allan daginn.
Sem dæmi má nefna, að bank-
ar fyrir sunnan hringja til mín
og spyrja um ákveðna aðila
sem vilja fá lán. Hafa mínar
upplýsingar oft riðið bagga-
mun um hvort þeir hafa haft
erindi sem erfiði.
— Það er orðið lífvænlegra
hérna úti á landsbyggðinni með
tilkomu sjónvarps, sjálfvirks
síma og stórbættra samgangna.
Nú síðast fréttist, að við Grund-
firðingar værum að fá heitt
vatn. Þá er það mikilsvert að
með tilkomu bankaútibúanna
höfum við sem stöndum í at-
vinnurekstri þurft í síminnk-
andi mæli að fara til Reykja-
víkur til að fá fyrirgreiðslu.
Sjálfur hef ég verið stjórnar-
formaður frá upphafi hjá Spari-
sjóði Eyrarsveitar eða í rúm 20
ár og ég veit hvers virði það
er fyrir fólkið hér í dreifbýlinu
að hafa sínar lánastofnanir.
FV 8 1976
51