Frjáls verslun - 01.08.1976, Page 59
Jöfcull hf. Hellissandi:
Ekki hægt að bjóða aðkomu-
fólki upp á sæmilega aðstöðu
vegna verbúðaskorts
IMauðsynlegt að byggja fiskimjölsverksmiðju á Snæfellsnesi
— Útgerð hófst frá Rifi 1955 og hefur aukist síðan, þótt fiskmagnið segi ekki til um það vegna
minnkandi fiskgengdar. Þá hafa hafnarframkv æmdir verið í gangi síðan. Við hér teljum, að
hafnaraðstaðan sé ein sú besta og staðsetningin góð gagnvart alhliða fiskimiðum, sagði Skúli Alex-
andersson, fiskverkandi á Hellissandi, í viðtali við FV. Skúli rekur Jök,ul h.f. og er með saltfisk-
verkun og síldarsöltun.
Skúli Alexandersson við fiskverkunarstöð sína á Hellissandi.
— Vertíðin í'vetur var frekar
léleg, en þó ekkert hallæri. Yfir
sumarmánuðina tek ég ekki á
móti fiski enda sumar og haust
verið vandamál hér vegna hrá-
efnisskorts. Við breiðfirðingar
höfum ekki hugsað svo mikið út
í skuttogaraútgerð vegna þess
að við álítum að síldin myndi
bjarga þessu vandamáli og að
við fengjum úthlutað leyfum til
síldveiða hér fyrir vestan. Þessi
skoðun byggist á því að þegar
síldin veiddist eins og hver
vildi og allir gátu gengið í hana,
þá voru breiðfirðingar stór aðili
bæði í veiðum og verkun. Okk-
ur þykir því súrt til þess að
vita að LÍU-menn og sjávar-
útvegsráðuneytið mæltu með
þeirri lausn mála að aðeins eitt
skip frá Breiðafirði, Skarðsvík-
in, fengi að veiða í nót og
sigla með aflann til heimahafn-
ar. Við vonumst því til að þeir
háu herrar hafi á reiðum hönd-
um úrlausn á hráefnisöflun fyr-
ir okkur á þessum dauða tíma.
NESMJÖL H.F.
— Við erum mjög illa stadd-
ir hér á Snæfellsnesi að hafa
enga fiskimjölsverksmiðju, sem
vinnur feitan fisk. Fyrir nokkr-
um árum var stofnað hlutafé-
lagið Nesmjöl, sem hefur það
markmið að hrinda þessu verk-
efni í framkvæmd. Meðan slík
verksmiðja er ekki fyrir hendi
er ekki hægt að vinna úrgang
úr karfa, síld og sérstaklega
loðnu, en núna er fundið loðnu-
svæði út af Vestfjörðum. Þetta
er geysimikil fjárfesting og við
hér á Nesinu höfum ekki fjár-
hagslegt bolmagn í slíka fram-
kvæmd. Því höfum við fengið
þingmenn Vesturlandskjördæm-
is til að bera fram á Alþingi
tillögu um að Síldarverksmiðj-
ur ríkisins byggi hér verk-
smiðju. Samþykkt var að skora
á ríkisstjórnina að beita sér fyr-
ir framgangi málsins. Og vænt-
um við þess að ekki líði á löngu
að eitthvað gerist í málinu.
VERBÚÐASKORTUR
— Hér er verulegur kraft.ur
í sjávarútvegi á vetrum ug
kemur þá mikið af aðkomufólki
og bátum. Staðurinn er hins
vegar alveg laus við að geta
boðið þessu fólki upp á sæmi-
lega aðstöðu. Fyrir 2 árum
voru ráðgerðar heilmiklar fram-
kvæmdir, til að leysa þetta
vandamál og reisa verbúð. Við
báðum Fiskveiðasjóð og Lands-
bankann, sem er okkar við-
skiptabanki, um fyrirgreiðslu.
Við unnum málið mjög vel í
hendurnar á þessum aðilum cg
gerðum fullkomna áætlun um
kostnað og þar að auki öfluðum
við verulegs fjármagns hér
heima. Við teljum að aðrir að-
ilar hafi ekki staðið betur að
þessum málum en gert var frá
okkar hendi. Þrátt fyrir þetta
höfnuðu þessar stofnanir allri
lánafyrirgreiðslu til þessara
framkvæmda og rökin voiu
fyrst og fremst þau að bygg-
ingin væri of fín fyrir þessa
stétt manna.
FV 8 1976
57