Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 4

Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 4
AUGLÝSING Ferðamiðstöðin hf.: Skipuleggur hópferðir á kaupstefnur erlendis Ferðamiðstöðin hf. mun árið 1977 skipuleggja hópferðir á hinar ýmsu vörusýningar víðs vegar um heim, útvega hótel og allar nauðsynlegar upplýs- ingar. Ennfremur útvegar Ferðamiðstöðin sýningarbása þeim fyrirtækjum sem vilja sýna vörur sínar. Mun Ferða- miðstöðin hf. vera stærsti aðil- inn hér á landi í skipulagningu slíkra hópferða. Dagana 3.—16. júní 1977 verður DRUPA sýningin í Diisseldorf haldin og mun hún að venju verða fjölsótt af ís- lendingum og má geta þess að síðast fóru 50—60 íslendingar ihéðan. Enda er nauðsynlegt fyrir alla aðila sem starfa í prentiðnaði að sækja þessa sýn- ingu, því þar er á boðstólum nýjasta tæknin sem völ er á að kynnast fyrir prentiðnaðinn. Björn Arnar hjá Myndamót- um var meðal þeirra sem sóttu síðustu DRUPA sýningu. Sagðist hann aldrei áður hafa séð jafn vel skipulagða sýningu, því þrátt fyrir hálfa milljón sýningargesta hefði ver- ið hægt að skoða allar nýjungar og fá sér matarbita í mjög snyrtilegu umhverfi án nokk- urra þrengsla eða langra bið- raðna. Það sem vakti sérstaka at- hygli hans var að sjá á þessari sýningu tæki og nýjungar alls- staðar að úr heiminum, jafnt frá járntjaldslöndunum, Banda- ríkjunum, Japan og öðrum iðn- aðarlöndum. Fjöldinn allur af hinum svokölluðu „litlu sýning- um“ eru haldnar fyrir prentiðn- aðarmenn, en engin sýning getur jafnast á við DRUPA í Dusseldorf, sagði Björn Arnar, og taldi hann mjög þýðingar- mikið fyrir aðila sem vilja fylgjast með á þessu sviði að sækja slíka sýningu heim og sjá með eigin augum það sem hugvitsmenn hafa fundið upp á nokkurra ára millibili. Á næstu DRUPA sýningu, sem er hin sjöunda í röðinni, verða eitt þúsund fyrirtæki með tækninýjungar sínar og sýningarsvæðið sjálft er 90.000 fermetrar. Þá er vert að minnast á sýn- ingar sem eru á döfinni í KOLN á næstkomandi mánuðum og má þar fyrst nefna alþjóðlegu húsgagnasýninguna, dagana 19. —23. janúar n.k. en við höfum frétt að uppselt sé á þessa sýn- ingu, þ.e.a.s. hótelherbergi fást ekki leigð lengur en Ferða- miðstöðin hefur skipulagt þessa ferð langt fram í tímann fyrir þá íslendinga sem þurfa að sækja þessa sýningu. Þá má geta um alþjóðlegu sælgætissýninguna sem haldin verður dagana 10.—13. febrúar n.k. Þessi sýning er nokkurs konar tengiliður við alþjóðlegu búsáhaldasýninguna sem hefst þann 12. febrúar 1977 og sem hefur fengið mikið lof hvaðan- æva að úr heiminum. Síðast en ekki síst er vert að geta um alþjóðlegu járnvöru- sýninguna, sem ætti ekki hvað síst að^ vera áhugaverð fyrir okkur fslendinga, því á þessari sýningu er kynnt nýjasta ihag- ræðing við byggingu húsa, þ.e.a.s. alls konar bygginga- verkfæri og einnig áhöld fyrir aðila sem vilja gera sem flesta hluti sjálfir, eða ,,do it your- self“ kerfið, Þeir sem enn hafa ekki at- hugað og nýtt sér möguleika að sækja erlendar kaupstefnur og sýningar ættu að hafa samband við Ferðamiðstöðina hf. Aðal- stræti 9 sem allra fyrst og fá nánari upplýsingar. Þær verða fúslega veittar. Góða ferð. 4 FV 12 1976
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.