Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 47
til íslands, og hafa þeir þar
kynningu og námskeið fyrir
pípulagningamenn og aðra fag-
menn. Komi upp vandamál,
sem ekki verða leyst á annan
hátt, sendir verksmiðjan sér-
hæfða menn til lausnar þeim
vanda, eða býður í heimsókn
þeim, er vinna að slíkum við-
fangsefnum. Þannig var t.d. í
desemberbyrjun nýfarinn frá
Nordborg 5 manna hópur frá
Akureyri, sem kynnti sér fram-
leiðsluvörur með tiiliti til
væntanlegra hitaveitufram-
kvæmda norðanlands.
Hlut Danfoss af íslenska
markaðinum töldu þeir mjög
stóran hvað hitatækni snertir.
Aftur á móti hefðu kælikerfi
ekki selst til íslands svo neinu
næmi, eða önnur stærri sjálf-
virk kerfi. En hvað framtíðina
snerti væri m.a. líklegt að auk-
inn markaður yrði á íslandi
fyrir olíuþrýstikerfi (hydrau-
lic), einkum í útgerð, og voru
niefndar sem dæmi af þessu tagi
litlar dælur, sem notaðar hafa
verið í handfærarúllur þær og
dekkspil, sem Elliði Norðdal
Guðjónsson framleiðir. Einnig
væri unnið að því í Héðni að
setja upp sérstaka þjónustu-
deild fyrir vökvaþrýstikerfi. Þá
væru hvers kyns hreinsikerfi
mjög á dagskrá, og þá einkum
sjálfvirk stjórnkerfi vegna
hreinsunar úrgangsefna.
§ Kaup og kjör
Er talið barst að aðbúnaði og
afkomu starfsmanna í verk-
smiðjum fyrirtækisins kom í
ljós, að laun í þeim eru nálægt
landsmeðaltali í Danmörku. Al-
rnennur verkamaður við færi-
band hefur í laun ca. 35 d. kr.
á tímann, eða um 6000 kr. á
mánuði. Að öllu jöfnu heldur
hann eftir 55—60% þessara
launa eftir að opinber gjöld
hafa verið frádregin. Hér vinn-
ur fyrst og fremst danskur
vinnukraftur. Fyrirtækið veitir
fjölbreytta félagslega aðstoð og
þjónustu við starfsmenn. Þann-
ig getur fólk búið í ýmsum
íbúðum, sem byggðar eru af
sjálfstæðum byggingasam-
vinnufélögum fyrir atbeina
Danfoss. Starfsmaður, sem unn-
ið hefur hjá fyrirtækinu í tvö
ár og hefur því sem næst 10.000
d. kr. eigið ráðstöfunarfé, getur
fengið lán til húsakaupa með
kjörum, að kalla mætti styrk.
Tekin hefur verið upp svo-
kölluð „flextid" í ýmsum deild-
um fyrirtækisins, en í því felst
að starfsmaður er að verulegu
leyti sjálfráður um vinnutíma
sinn, innan þeirra marka, sem
starf heildarinnar setur. Með
þessum hætti er t.d. hægt að
spara sér heilan dag, ef vill.
Mikið framboð er á fræðslu-
námskeiðum ýmiss konar og er
með þeim bæði veitt almenn
fræðsla eða þau höfða beint til
starfsins, og geta þá m.a. leitt
til betur launaðra starfa. Þá
styrkir Mads Clausen sjóður-
inn, sem settur var á stofn til
þess að veita fé til menningar-
mála í héraðinu margs konar
starfsemi, s.s. tónlistarstarf,
leiklist, tómstundaklúbbe,
byggingu félagsheimila, við-
hald gamalla bygginga o.fl..
# Góð þátttaka ■
félagsstarfi
Mikið er af félögum og klúbb-
um meðal starfsfólks, og fær
slík starfsemi gjarnan styrk frá
fyrirtækinu. Reynt er að halda
sem lengst sambandi við eftir-
launaþega, bæði með því að fá
þá til að viðhalda félagslegum
tengslum, en jafnframt geta ör-
yrkjar, eftirlaunaþegar og ein-
stæðar mæður fengið heima-
verkefni, og er þá efnið flutt
heim en framleiðslan sótt.
§ Hlutafélag frá 1961
Danfoss var í fyrstu einka-
fyrirtæki, en var gert að hluta-
félagi 1961. Mads Clausen veitti
því forstöðu til dauðadags 1966.
Nú er meirihluti hlutabréfa
eign sjóðs, er ber nafn konu
hans. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja starf fyrirtækisins á
allan hátt. Ekkja stofnandans
er enn í stjórnendatölu Danfoss,
en í stjórn með henni sitja
meðal annarra tveir fulltrúar
starfsfólks á hverjum tíma.
Islensk
fyrírtækí
76-77
komín út
Bókin Islensk fyrirtæki veitir
aðgengilegustu og
víðtækustu upplýsingar um
íslensk fyrirtæki, félög og
stofnanir, sem eru fáanlegar
í einni og sömu bókinni.
fslensk fyrirtæki skiptist
niður í:
Fyrirtækjaskrá,
Viðskipta- og þjónustuskrá,
Umboðaskrá
og
lceland today. Viðskiptalegar
upplýsingar á ensku um
ísland í dag.
Islensk fyrirtæki kostar kr.
4.500.—.
Sláið upp í
”ÍSLENSK FYRIRTÆKI”
og finnið svarið.
FÆST HJÁ ÚTGEFANDA.
yr~ '
s-w*! agfij
Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178 - Símar: 82300 82302
■
FV 12 1976
47