Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 75
Bella Center
Sýningar- og ráðstefnumiðstöð
í alfaraleið
Rætt við Bodil Teglers, blaðafulltrúa.
Á ferð okkar til Kaupmannahafnar heimsóttum við sýningar- og
ráðstefnumiðstöðina Bella Center á Amager. Frú Bodil Teglers
blaðafulltrúi tók brosandi á móti okkur og bauð til kynningar-
göngu um húsakynni Bella Center. Á meðan á ferðinni stóð skýrði
frú Teglers frá alhafnamanninimi, Anker Sörensen, sem er for-
stjóri þcssarar athafnamiðstöðvar og frumkvöðull hennar.
Séð yfir sýningarsal Bella Center. Þar eru haldnar margar miklar
sýningar árlega. Hér á landi er Scandinavian Fashion Week einna
þekktust.
„f blaðaviðtali við hann í
Berlingske Tidende fyrir
nokkru“ sagði frú Teglers, „er
honum sérstaklega þakkað
þetta framtak enda hefur hann
allt frá því hann skipulagði
fyrstu matvselasýningu sína í
Álaborg haldið á lofti hugmynd
sinni um Kaupmannahöfn sem
samkomumiðstöð og með vígslu
hins nýja Bella Center, hinn 5.
september 1975, er Kaupmanna-
höfn orðin ein af fremstu ráð-
stefnuborgum Evrópu.“
AUKIN VERZLUNARTENGSL
Anker Sörensen tekur fram í
blaðaviðtali sín.u að borgin eigi
eftir að auka enn meir verzlun-
artengsl sín við útlönd á næstu
fimm árum, sérstaklega ef Dan-
ir fá auknar samgöngur með
lagningu brúa til Svíþjóðar og
Fjóns. Einnig skuli fólk hafa
hugfast, að Kastrup-flugvöllur
sé í dag talinn sá þriðji stærsti
í Evrópu og Danmörk liggur
miðsvæðis gagnvart helztu at-
hafnalöndum í Evrópu. T.d.
tekur flug frá Amsterdam til
Kaupmannahafnar aðeins fimm
stundarfjórðunga, frá Frank-
furt minna en IV2 klst., aðeins
45 mín. frá Hamborg, rúma
klukkustund frá London og
París og tvo og hálfan tíma frá
Róm.
HLUTVERK BELLA CENTER
Frú Teglers útskýrði -hlut-
verk Bella Center, en á þessum
tíma var verið að undirbúa sýn-
inguna „Copenhagen Internatio-
nal Boat Show“ sem átti að fara
fram dagana 6.—14. nóvember.
Orð frú Teglers voru staðfest
eftir því sem kynningargöng-
unni miðaði áfram, því alls-
staðar gat að líta sýningar-
glugga ýmissa framleiðenda
hvananæva úr Evrópu, þ.e.a.s.
húsgögn frá fyrirtækjum í
Skandinavíu og Þýzkalandi,
klæðnað alls konar og silfur-
muni, en fyrrnefndar vörur
voru staðsettar í álmunni sem
nefnd er „Scandinavian Trade
Mart“. Þar getur framleiðandi
tryggt sér sýningarstað og tjáði
frú Teglers að þessi hugmynd
hefði fyrst skotið upp kollinum
í Bandaríkjunum árið 1920.
Enda væri „mart“-hugmyndin
augljós hagræðing þegar fjar-
lægð milli kaupanda og selj-
anda væri talsverð, því nú get-
ur áhugasamur kaupandi skoð-
að vörur á einum og sama
staðnum og þarf ekki að ferðast
á milli framleiðenda, eins og
tíðkaðist áður fyrr.
Á göngunni i gegnum bygg-
inguna tókum við eftir snyrti-
legum frágangi og víða prýddu
blómaker húsnæðið. Þótt marg-
ir séu ekki hrifnir af útliti
Bella Center einkennist um-
hverfið innanhúss af hugvit-
semi og snyrtimennsku sem
með sanni má segja að sé eitt
af mikilvægum þjóðareinkenn-
um Dana.
Eftir hinar athyglisverðu
upplýsingar höfðu spurningar
vaknað sem beint var til frú
Teglers.
— Hvernig lýst yður á ís-
lenzkar vörur, þ.e.a.s. fatnað,
FV 12 1976
75