Frjáls verslun - 01.12.1976, Page 21
Efnahagsmál og utan-
ríkisverzlun Dana
Grcin eftir dr. Guðmund Magnússon prófessor
Það, er ekki langft síðan verðbólgan var yfir 20% í Danmörku, sem er mikið á Vestur-Evrópumæli-
kvarða, þótt íslendingar kippi sér ekki upp við slíka tölu. Samtímis voru erlendar lántökur miklar
og umsvif hins opinbera höfðu aukist 'tiltölulega hratt síðustu árin. Þær leiðir sem farnar hafa verið
til að leysa efnahagsvandann hafa sýnt gömul vandamál í nýju ljósi að ýmsu leyti. Með niður-
skurði á útgjöldum hins opinbera og aðhaldsemi í fjárfestingarmálum. pcningamálum og launamál-
um tókst mjög fljótlega að koma verðbólgunni niður fyrir 10% á ári, en þetta varð á kostnað at-
vinnu, jafnframt því sem erlendar lántökur ha fa haldið áfram að vaxa og halli er á utanríkisvið-
skiptum.
En atvinnuleysið í velferðai'-
ríkinu hefur ekki reynst eins
afdrifaríkt og atvinnuleysi
kreppuáranna. Tryggingabætur
hafa verið svo háar, að ekki
borgaði sig fyrir menn að ráða
sig til starfa í nálægum löndum
og til að byrja með gengu sög-
ur af því að atvinnuleysingjar
héldu til í sólarlöndum, þar
sem ódýrara var að lifa en í
Kaupmannahöfn, en skruppu
heim á milli til að ná í styrk-
ina.
AÐ SPARA OF MIKIÐ
Árið 1974 var lögleiddur í
Danmörku skyldusparnaður á
hátekjur. Mun þaðan komin
hugmynd vinstri stjórnarinnar
sem hún bar upp á Alþingi það
ár en ekki náði fram að ganga
fyrr en í tíð núverandi ríkis-
stjórnar.
En Iþessi ráðstöfun gafst ekki
Dönum vel. Eins og reyndar
hefur sýnt sig einatt áður (og
meðal annars hér á landi 1968)
verður fólk gætnara og fer að
leggja meira til hliðar þegar á
móti blæs. Aðhaldsaðgerðirnar
í Danmörku og aukið atvinnu-
leysi varð til þess að fólk dró
saman seglin, keypti minna og
sparaði meira. Afleiðingin varð
sú að tekjur hins opinbera urðu
minni og mikill halli myndað-
ist i rikisbúskapnum. Atvinnu-
leysið varð einnig að sjálfsögðu
enn meira en ella. Danir voru
því komnir í hina velkunnu
stöðu sem Keynes nefndi þver-
stæðu spörunar, þ.e. að of mikil
Stór-
verzlunin
Imia
í Kaup-
mannahöfn.
Almenn
neysla fer
nú vaxandi
eftir
sparnað
síðustu
ára.
spörun hvers einstaklings gæti
leitt til þess að heildarspörun í
þjóðfélaginu minnkaði, einfald-
lega vegna þess að þjóðartekj-
urnar skryppu saman.
Nú voru góð ráð dýr. Skyldu-
sparnaðurinn var leystur upp
og söluskattur lækkaður um
stundarsakir til að örva við-
skipti og framleiðslu. Þetta gaf
allgóða raun, en vegna hins
opna hagkerfis hlaut talsvert
af viðskiptunum að koma fram
í auknum innflutningi.
MEIRI FRAMLEIÐNI
Það er þekkt lögmál að af-
köst á mann fara minnkandi
eftir því sem fleiri eru ráðnir
— að öðru jöfnu. Þetta hefur
glögglega sýnt sig hjá Dönum.
Framleiðslan hefur ekki minnk-
FV 12 1976
21