Frjáls verslun - 01.12.1976, Page 25
Mogens Glistrup er umdeildasti stjórnmálamaður í Danmörku
um þessar mundir. Hann vill hækka rnark skattfrjálsra tekna og
draga á móti úr opinberri skriffinnsku.
Það verður ekki auðvelt að
stýra danska hagkerfinu þann-
ig að framvindan vei'ði lík
spánni. Frjálsari peningamark-
aður en hér er og fjármagns-
flutningur milli landa geta orð-
ið til að torvelda sókn að settum
markmiðum. Til dæmis þyrfti
helst að stilla vextina af þann-
ig, að vextir til langs tima
væru tiltölulega lágir til þess
að örva íbúðarbyggingar og
fjárfestingu atvinnuveganna, en
vextir til skamms tima að vera
tiltölulega 'háir til þess að laða
erlent fjármagn til landsins og
fjármagna þannig hallann á ut-
anríkisviðskiptum og forðast
spákaupmennsku á dönsku
krónunni sem leitt gæti til
gengislækkunar. En vaxta-
stefna af þessu tagi er afar erf-
ið með tilliti til samskipta við
önnur lönd. Sennilega væri
best að lækka þá vexti yfir alla
línuna og treysta því að gjald-
eyrismálin leystust eigi að síð-
ur.
UT ANRÍKIS VIÐ SKIPTI
Danir fóru ekki varhluta af
samdrætti heimsverslunarinnar
upp úr olíukreppunni. Útflutnr
ingur beinlínis minnkaði en
innflutningur þó enn meira.
Þessi þróun snýst aftur við
þegar vöruútflutningur eykst
sennilega um 4% á föstu verð-
lagi en> vöruinnflutningur um
17%. Árið 1977 er gert ráð fyr-
ir að vöruútflutningurinn auk-
ist um 7% en innflutningurinn
aðeins um 0,5%.
Mest eru viðskiptin við önn-
ur lönd Efnahagsbandalagsins
og þarnæst við EFTA-lönd, sbr.
meðfylgjandi töflu. Mestur út-
flutningur er til Bretlands, Sví-
þjóðar og Vestur-Þýskalands,
en innflutningur mestur frá
Vestur-Þýskalandi, Svíþjóð og
Bretlandi. Sé útflutningur og
innflutningur lagður saman
kemur Vestur-Þýskaland í
fyrsta sæti. Svíþjóð í öðru og
Bretland í þriðja. Noregur, Hol-
land, Ítalía, Bandaríkin og
Finnland eru einnig mikilvæg
viðskiptalönd.
ÍSLENDINGAR KAUPA
MEST
íslendingar munu vera bestu
viðskiptavinir Dana miðað við
kaup á íbúa. Við höfum flutt
inn 8—10% af vörum okkar frá
Danmörku en selt þangað 6—
8 % útf lutningsins. Nánari
skipting verðmætis árið 1976
var samkvæmt Verslunarskýrsl-
um þessi:
VERÐMÆTI ÚTFLUTTRAR
VÖRU FRÁ ÍSLANDI TIL
DANMERKUR 1975 EFTIR
V ÖRUTEGUNDUM
Fob.-verðmæti í bús kr.
Ný og ísvarin síld 786.423
Fryst rækja 39.038
Fryst hrogn 59.113
Niðursoðnar og niður- lagðar sjávarafurðir 21.414
Grásleppuhrogn 237.119
Loðnulýsi 130.359
Aðrar sjávarvörur 93.481
Sjávarafurðir alls 1.356.947
Kindakjöt 76.087
Kaseín 41.520
Aðrar landbúnaðar- afurðir 26.465
Landbúnaðarafurðir alls 144.072
VERÐMÆTI ÚTFLUTNINGS OG INNFLUTNINGS DANA
EFTIR VIÐSKIPTASVÆÐUM
í þús. d.kr. 1975.
Útflutningur Innflutningur
Lönd Efnahagsibandalagsins 22.408 27.289
EFTA-lönd 13.639 15.369
Önnur lönd í Vestur-Evrópu 1.582 932
Austur-EVrópa 176 3.008
Bandaríkin, Kanada og Puerto Rico 3.088 3.850
Önnur lönd 9.160 9.043
Samtals 50.053 59.491
Ferskvatnsafurðir 27.199
Loðsútuð skinn og
húðir 17.598
Ullarlopi og ullarband 143.949
Prjónavörur úr ull 64.412
Kísilgúr 31.651
Aðrariðnaðarvörur 34.349
Iðnaðarvörur alls 291.959
Aðrar vörur 20.961
Útflutningur samtals 1.841.138
25
PV 12 1976