Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 33
þrír, Efnahagsbandalagslöndin,
Bandaríkin og „önnur lönd“. Á
síðustu árum hafa rétt um 40%
útflutningsins farið til Bret-
lands, 20% til annarra EBE-
landa og 40% á önnur mark-
aðssvæði, þar með talin Banda-
ríkin. Beikon og smjör, sem
eru mikilvægustu útflutnings-
vörurnar, fara svo til eingöngu
til Bretlands og sjá Danir Bret-
um fyrir um helmingi alls
svínakjöts, sem þar er neytt
og einum fimmta af smjörinn-
flutningi til Bretlands. Árið
1974 námu útflutningstekjur af
landbúnaðarvörum 12,9 millj-
örðum d. kr. Þar af 1,3 millj.
í niðurgreiðslur frá landbúnað-
arsjóði EBE.
• 1400 ÞÚS. TONNA
ÁRSAFLI
Aðstaða til fiskveiða frá
Danmörku er góð, þar sem
landið liggur vel við fiskimið-
um í Norðursjó, Skagerrak.
Kattegat og Eystrasalti, en
sund, firðir og víkur eru fyrir-
taksuppeldisstöðvar fyrir fisk.
Afli danskra fiskimanna hefur
verið um 1400 þús. tonn af
fiski og skelfiski á ári og hef-
ur skiptingin verið þannig að
mest veiðist af þorski, þar næst
kola og síðan síld og brislingi.
Til samanburðar má geta þess,
að 1938 var heildaraflinn 87
þús. tonn og 213 þús. tonn árið
1950. Langmest hefur verið
veitt í Norðursjónum, síðan
Kattegat og svo Skagerrak.
• LITLIR BÁTAR
Það er einkennandi fyrir
danskan sjávarútveg, að bát-
arnir, sem sækja lengst út á
miðin eru yfirleitt litlir og þar
til fyrir fáeinum árum voru
þeir yfirleitt allir undir 50
brúttólestum. Hin siðustu ár
hafa verið smíðuð ný fiskiskip,
sum yfir 200 brúttólestum.
Það teljast vera rúmlega 10
þús. starfandi fiskimenn í Dan-
mörku og vélbátaeignin er um
7 þús., þar af um 200 yfir 100
tonn. Það er líka einkennandi,
að í langflestum tilvikum eru
skipin í eigu áhafnanna, sem
fá hlut í aflanum samkvæmt
ákveðnum reglum og gamalli
hefð, sem þó er nokkuð mis-
munandi eftir landshlutum.
Kjaradeilur á danska fiskiflot-
anum hafa verið svo til óþekkt
fyrirbæri.
Um þriðjungur alls aflans er
seldur á uppboðum, sem fram
fara í öllum stærstu hafnar-
bæjunum. Kaupendur eru aðal-
lega heildsalar, sem selja svo
smásölum, útflutningsaðilum
eða vinnslustöðvum. í sumum
höfnum starfa samvinnufélög
fiskimanna, sem þeir leggja upp
hjá. Þessi samvinnufélög taka
á móti 20-25% af öllum fiski,
sem landað er.
• FERSKUR FISKUR
FLUTTUR ÚT
Þar eð íbúar í Danmörku eru
um 5 milljónir og fiskneyzlan
um 23 kg á mann á ári fer
meirihluti fiskaflans til útflutn-
ings. Danskur fiskur og aðrar
fiskafurðir eru á boðstólum ’
flestum löndum heims. Flestar
fiskihafnirnar eru á Jótlandi og
baðan er hægt að flytja fiskinn
ferskan á neytendamarkað á
meginlandi Evrópu, landleið-
ina. Samtals nemur fiskútflutn-
ingur Dana um 500 þús. tonn-
um á ári og er þar meðtalinn
útflutningur Grænlendinga en
ekki Færeyinga. Verðmæti fisk-
útflutningsins var um 1700
milljónir danskra króna í fyrra.
Helztu markaðslöndin fyrir
danskan fisk eru V-Þýzkaland,
Bretland, Svíþjóð og Banda-
ríkin. Talsvert er flutt út af
iifandi fiski til nágrannaland-
anna og kælivagnar flvtia ísað-
an fisk til landanna í V- og S-
Evróou. Æ stærri hluti útflutn-
ingsins er þó meðhöndlaður á
einhvern hátt í verkunarstöð-
um áður en hann er sendur
á markaðinn. Mjög mikil aukn-
ing hefur t. d. orðið á flaka-
framleiðslu, sem flutt er út
ýmist fersk eða hraðfryst.
# JÐNAÐUR STÆRSTA
A T VINNU GREININ
Þó að margir líti á Danmörku
fvrst og fremst sem landbún-
aðarland og sjái smjörið fyrir
sér drjúoa þar af hverju strái,
má ekki gleymast, að það er
ýmis konar framleiðsluiðnaður,
sem veitir fleiri atvinnutæki-
færi í landinu en nokkur grein
önnur. Iðnaðurinn er næst
stærsti vinnuveitandinn og hef-
ur í sinni þjónustu um 370 þús.
starfsmenn, verkafólk og stjórn-
endur, en aðeins hið opinbera
hefur fleira starfsfólk í sinni
Danskir fiskibátar eru yfirleitt litlir. Hér sjáum við sjómcnn búa
sig undir rauðsprettuveiðar cn þeir fara út á kvöldin og koma í
land að morgni.
FV 12 1976
33