Frjáls verslun - 01.12.1976, Page 79
Bang & Olufsen:
Flytja út hljómffutningstæki
til 30 landa
Sérstæö hönnun og tæknileg gæöi hafa aflaö B&O viöurkenningar
Við lentum á flugvellinum í Karup á Jótlandi eftir rúmlega hálftímaflug frá Kaupmannahöfn.
Þegar ekið var eftir flugbrautinni í áttina að flugstöðvarbyggingunni blöstu við bclztu hernaðar-
leyndarmál Dana uppljómuð í myrkrinu. Þama voru orrustuflugvélar danska hersins í flugskýlum,
þöktum torfi til að gera leyndardóminn enn meiri. Og þegar inn í flugstöðina kom var Ijóst að hún
var hálfniðurgrafin til þess að farþegar og aðrir, sem þar eiga leið um geti ekki séð út á flugvallar-
svæðið.
Úr einum verksmiðjusal B & O.
Við erum heldur ekki hingað
komnir til að skoða hernaðar-
mannvirki, því að meiningin er
að heimsækja verksmiðjur
Bang & Olufsen í Struer, sem
er um hálftímaakstur í burtu.
Það fer orð af Bang & Oluf-
sen víða um lönd fyrir há-
þróuð hljómflutndngstæki og
útvarps- og sjónvarpsviðtæki,
sem hafa þótt skera sig úr
vegna afbragðs hönnunar hvað
útlit snertir og jafnframt fyrsta
flokks tæknilegra gæða.
57% BÆJARBÚA HJÁ B & O
Struer er um 30 þús. manna
bær við Limfjörðinn, vestarlega
á Jótlandi. Þar eru aðalstöðvar
Bang & Olufsen og 57% af öllu
vinnandi fólki í bænum starfar
hjá fyrirtækinu. Áður en það
kom til sögunnar byggði Struer
afkomu sína fyrst og fremst á
þjónustu við járnbrautirnar
enda var bærinn mikilvæg sam-
göngumiðstöð fyrr á árum.
Bang & Olufsen hafa hluta af
starfsemi sinni einnig í bæjun-
um Skive og Lemvig en samtals
vinna nú 2616 manns hjá fyrir-
tækinu, þar af 1919 í Struer,
498 í Skive og 199 í Lemvig.
Starfræksla verksmiðja Bang
& Olufsen í Struer gefur bæn-
um nokkra sérstöðu í dönsku
atvinnulífi, þar eð 37% af
vinnufæru fólki í sveitarfélag-
inu fást við iðnað. Fyrir sveit-
arfélög í Danmörku almennt er
þetta hlutfall um 15%. Starfs-
menn B & O koma þó ekki að-
eins frá þessum þremur bæjum,
sem nefndir hafa verið, heldur
alls frá 24 bæjum og þorpum,
flestum á Jótlandi.
ENDURRÁÐNINGAR
í síðustu ársskýrslu B & O
kemur fram, að á reikningsár-
inu hafði um 600 manns verið
bætt við starfsliðið. Var þetta
27% aukning á sama tíma og
atvinnutækifærum í iðnaðinum
sem heild fór fækkandi í Dan-
mörku. Ef þessir 600 hefðu verið
á atvinnuleysisskrá hefðu þeir
kostað þjóðfélagið um 31 millj.
d.kr. á ári í atvinnuleysisbætur.
Af þeirri upphæð hefðu aftur 9
milljónir farið í skatta en sem
starfsmenn B & O greiddu þeir
hims vegar 11 milljónir í tekju-
skatt. Auk þess að spara 22
milljónir í útgjöld fékk samfé-
lagið 11 millj. króna tekjur af
þessu fólki. En það skal tekið
fram, að atvinnuleysi hefur
gert vart við sig hjá Bang &
Olufsen eins og svo mörgum
öðrum dönskum iðnfyrirtækj-
um. Fyrir tveimur árum var
sagt upp um 600 manns vegna
minnkandi eftirspurnar eftir
framleiðsluvörum fyrirtækisins
og því má segja að nú sé um
endurráðningar að ræða.
VELTAN 625 MILLJÓNIR
Veltan hjá Bang & Olufsen
og dótturfyrirtækjum, sem ann-
ast sölu á erlendum mörkuðum,
nam samtals 625 millj. d.kr. á
síðasta ári og hagnaður fyrir
FV 12 197G
79