Frjáls verslun - 01.12.1976, Qupperneq 86
WILHELM IXIORÐFJÖRÐ:
Konunglegar
AUGLÝSING
postulínsvörur
Den kongelige porcelains-
fabrik er gamalt og rótgróið
danskt fyrirtæki stofnað árið
1775 og var því 200 ára á síð-
asta ári. Þetta fyrirtæki er
stærsti postulínsframleiðandi í
Danmörku og framleiðir marg-
ar þekktar vörur í sínu heima-
landi s.s. Flora Danica matar-
og kaffistell, sem einungis konr
ungsfjölskyldur og hefðarfólk
skarta á borðum sínum. Hér á
landi er fyrirtækið þekktast
fyrir matar- og kaffistellin, með
munstrum sem kallast bláa
blómið, brúna rósin, mussel
malet, gullkarfan og Dagmar.
Hér á landi er Wilhelm Norð-
fjörð, umboðs- og heildverslun
umboðsaðili Den kongelige
porcelainsfabrik.
Auk matar- og kaffistella
framleiðir fyrirtækið einnig
styttur, platta, skálar og vasa
m.a., en vörurnar eru yfirleitt
handmálaðar. Ýmsar fram-
leiðsluvörur den kongelige
porcelainsfabrik eru heims-
frægar og hafa hlotið viður-
kenningu á sýningum víða um
heim. Listamenn, sem réðust til
fyrirtækisins á uppvaxtarárum
iþess og síðar hafa skapað ýmis
stórkostleg listaverk og munst-
ur. sem enn í dag eruframleidd.
Má m.a. nefna Anton Carl
Luplau, Gustav Friederich
Hetch og Arnold Krog.
Matar- og kaffistellið bláa
blómið hefur m.a. verið fram-
leitt allt frá árinu 1775. Hið
heimsþekkta Flora Danica stell
var fyrst framleitt 1790. Jóla-
plattar hafa verið framleiddir
frá 1908.
Den kongelige porcelains-
fabrik framleiðir nú um 17000
mismunandi hluti bæði postu-
líns- og leirmuni, og starfsmenn
verksmiðjunnar eru um 2000.
WILHELM MORÐFJÖRÐ:
Heimsþekktar
.......
• QfcOffQ %
V*A/s^.;
•.......
Silfurvörur frá Georg Jensen
splvsmedie A/S í Kaupmanna-
höfn eru heimsþekktar vörur,
en silfurmunir frá fyrirtækinu
eru nú á rúmlega 40 söfnum út
um allan heim, og margar sýn-
ingar hafa verið haldnar á
þeim. Aðallega er framleiddur
silfurborðbúnaður, en Georg
Jensen er þekktastur fyrir
hnífaparasettin konge, dronn-
ing, Bernadotte, antik og
Margrethe, sem er tileinkað nú-
verandi Danadrottningu. Wil-
helm Norðfjörð umboðs- og
heildverslun er umboðsaðili
fyrir Georg Jensen fyrirtækið.
Georg Jensen fæddist árið
1856. Þegar hann var 38 ára að
aldri árið 1904 ifór hann að
hanna silfurmuni, sem hann
síðar varð heimsfrægur fyrir
Fyrsta hniífaparasettið, sem var
framleitt var antik, en það er
framleitt enn þann dag í dag.
Fyrsta verkstæðið hans var í
Bredgade í Kaupmannahöfn, en
þar starfaði hann ásamt nokkr-
um starfsmönnum sínum.
Tveim árum eftir að hann
opnaði verkstæði hóf hann
samstarf við Johan Rodhe,
heimskunnan myndhöggvara
og hannaði hann m.a. konge
hnifaparasettið árið 1915.
Georg Jensen hlaut strax viður-
kenningu fyrir silfurmuni sína,
en auk silfurborðbúnaðar hefur
fyrirtækið einnig framleitt stál-
borðbúnað svo og kaffikönnur,
skálar og fleiri vörur. Einnig
hefur fyrirtækið framleitt,
skartgripi, sem hlotið hafa mik-
ið lof.
Silfurvörur frá Georg Jen-
sen splvsmedie A/S hafa frá
fyrstu tíð skarað fram úr fyrir
gæði og formfegurð, en hér á
landi eru þessar vörur aðallega
seldar i úra- og skartgripaversl-
un Jóhannesar Norðfjörð,
Hverfisgötu 49, en einnig í
verslun hans að Laugavegi 5.
86
FV 12 1976